157. löggjafarþing — 58. fundur,  22. jan. 2026.

hækkun á gjaldskrám Veitna.

[11:03]
Horfa

Rósa Guðbjartsdóttir (S):

Virðulegur forseti. Veitur hafa hækkað verðskrá sína umtalsvert eða um 50% að meðaltali á fastagjald en það verður mismikil hækkun eftir aðstæðum, t.d. hjá fyrirtækjum og stofnunum sem sumar fá á sig mörg hundruð prósenta hækkun á fastagjaldi. Hækkunin leiðir til allt að 20% hækkunar á húshitunarkostnaði að meðaltali á heimili og nemur því tugum þúsunda á ári. Heimili og fyrirtæki á höfuðborgarsvæðinu reiða sig á heitt vatn frá Veitum sem í einokunarstöðu sinni sinnir þessari grunnþjónustu. Þessi hækkun er langtum meiri en nokkur rök hníga að, ekki síst vegna kjarasamninga sem við héldum öll að væru enn í gildi en í þeim er gert ráð fyrir að gjaldskrárhækkanir verði hóflegar á tímabilinu. Veitur eru í eigu Orkuveitu Reykjavíkur sem Reykjavíkurborg er yfir 90% eigandi að. Ríflegar arðgreiðslur hafa runnið í hít borgarsjóðs nú í nærri áratug, greiðslur sem hafa numið alls um tugum milljarða króna og gert er ráð fyrir að á þessu ári nemi þær yfir 4 milljörðum. Það fjármagn fer því beint og óbeint í að fjármagna hallarekstur borgarsjóðs.

Því langar mig að spyrja hæstv. ráðherra, þótt fyrirhugaðar séu miklar framkvæmdir hjá Veitum eins og komið hefur fram: Finnst honum eðlilegt að höfuðborgin fái ríflegar arðgreiðslur á sama tíma og velti í þokkabót kostnaðinum yfir á íbúa og fyrirtæki, ekki bara í höfuðborginni heldur í nágrannasveitarfélögunum, líka, í raun til að fjármagna hallarekstur Reykjavíkurborgar? Er það eðlilegt að mati ráðherra? Einnig langar mig til að fá viðbrögð hans við þeim orðum og þeirri gagnrýni og athugasemdum verkalýðsforystunnar að hér sé um gjaldagleði að ræða sem fari beint út í verðbólguna og hér sé um dulda skattahækkun að ræða. Hvað segir hæstv. ráðherra við þeirri gagnrýni og athugasemdum?