hækkun á gjaldskrám Veitna.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir þessa fyrirspurn. Það liggur auðvitað fyrir að það er gríðarleg fjárfestingar- og framkvæmdaþörf hjá hitaveitum landsins. Það gildir um Veitur og það gildir líka um önnur hitaveitufyrirtæki víðar um land, sem hafa einnig verið að hækka gjaldskrár verulega. Hitaveitureikningurinn er hvergi að hækka um 50%, ólíkt því sem ætla mætti af umræðunni, en engu að síður eru hækkanirnar verulegar. Þær eru á bilinu 11–19% en þær hefðu orðið á bilinu 14–21% ef ráðuneytið hefði ekki brugðist við og gert kröfu um lægra arðsemisviðmið í útreikningum Veitna, sem ég gerði í desember. Það breytir ekki því að þetta er veruleg hækkun og hún er til komin vegna þessarar fjárfestingar- og viðhaldsþarfar. Auðvitað er hægt að taka umræðuna um arðgreiðslustefnu Veitna og samstæðunnar í heild. Það er vissulega gleðilegt að þessi samstæða geti greitt arð en við viljum líka, og það er markmið kjarasamninga, halda gjaldahækkunum í skefjum. Hér var minnst á skattahækkun, þetta er auðvitað gjaldahækkun, það liggur í hlutarins eðli.
Þessi umræða dregur ágætlega fram mikilvægi þess að setja heildarlög um hitaveitur í landinu. Í dag byggja hitaveitur sína starfsemi, og m.a. hækkun gjaldskrár, á mjög gamalli löggjöf; orkulögunum gömlu, ætli þau hafi ekki verið sett 1967. Það vantar skýr arðsemisviðmið inn í lögin, vantar skýrari viðmið um leyfða arðsemi hitaveitna. Það er eitt af því sem við höfum verið að vinna að í ráðuneytinu, að setja skýrari lagaramma þannig að það liggi algerlega fyrir á hvaða grundvelli hækkanir fara fram og (Forseti hringir.) að stjórnvöld hafi þá líka skýrari heimildir til að bregðast við vegna þess að staðfestingarhlutverk ráðherra í þessum efnum er mjög takmarkað. (Forseti hringir.) Ég hef ekki heimildir til að bregðast við nema það sé beinlínis þannig að eitthvað bendi til þess að hækkanir séu umfram það sem lög leyfa.