157. löggjafarþing — 58. fundur,  22. jan. 2026.

Staða alþjóðamála, munnleg skýrsla utanríkisráðherra.

[11:12]
Horfa

utanríkisráðherra (Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir) (V):

Virðulegi forseti. Eftir síðari heimsstyrjöldina var heimsmyndin þannig að hún hafði verið tekin niður og í rauninni mölbrotin. Heimsbyggðin stóð frammi fyrir því að mála saman mynd. Hún stóð frammi fyrir rifnum striga en auðum að mínu mati og við þurftum svolítið að byrja upp á nýtt og ákveða hvað skipti þjóðirnar, fólkið innan landanna, mestu máli og hvað gæti líka komið í veg fyrir að allt myndi hrynja að nýju. Í ríflega 80 ár höfum við núna staðið í sameiningu að því að mála þessa mynd. Strax í byrjun áttum við því láni að fagna að við tókum þátt í því að setja Sameinuðu þjóðirnar á laggirnar með sínum stofnsáttmála. Það var mikilvægt að við ákváðum það. Við sáum að NATO, Atlantshafsbandalagið, var stofnað og ekki síst að frumkvæði Bandaríkjanna. Síðan var hin hliðin á þeim peningi að Bandaríkin — í ljósi þess að mikilvægi alls þess væri að tryggja frið og um leið þá frelsi einstaklinganna innan þjóðanna var grunnurinn lagður að Evrópusambandinu. Allt var þetta mjög mikil fyrirhyggja, forsjálni, framtíðarsýn sem markaði það að við höfum lifað í heildina séð farsæla og góða tíma. Þetta hefur veitt okkur Íslendingum skjól og alveg ótvírætt ekki síst smáríkjum eins og Íslandi.

Núna stöndum við, og við verðum einfaldlega að segja það, frammi fyrir nýrri heimsmynd sem er verið að reyna að teikna, verið að reyna að breyta og það er verið að hleypa mjög fáum að penslinum. Þá verðum við að spyrja okkur: Viljum við að þær pensilstrokur verði eingöngu gerðar á forsendum leiðtoga stórveldanna, sem hafa því miður sýnt að þeir vilja ekki halda eða ýta undir þau sameiginlegu gildi sem við Íslendingar höfum staðið keik með, þvert yfir allt pólitíska litrófið, að berjast fyrir og tala fyrir? Við þurfum þá að ræða hvaða mynd það er sem við þurfum að teikna með öðrum þjóðum að nýju og sú mynd verður að fela í sér að við þorum að horfast í augu við hvaða leiðir eru bestar og hvað margar, því að þær eru margar og það er ekki bara annaðhvort eða. Það er ekki þannig heldur verðum við alltaf að spyrja okkur: Hvaða leiðir styðja og styrkja stöðu Íslands í samfélagi þjóðanna? Hvaða leiðir ýta undir íslenska hagsmuni og ekki síður okkar gildi?

Frú forseti. Ég vil gjarnan þakka fyrir þetta tækifæri til að ræða heimsmálin hér í þinginu. Við fáum síðar tækifæri til þess þegar við förum yfir skýrsluna að fara ítarlega yfir breiðara sviðið. Ég held að það hafi sjaldan verið þörf á jafn hreinskiptu samtali og akkúrat núna og ég vil einnig sérstaklega þakka hv. utanríkismálanefnd fyrir góð samtöl og gott samstarf á umliðnum vikum og mánuðum. Við sjáum stríð geisa, stórveldapólitíkin er að harðna og grundvallargildin eru því miður að víkja. Heimurinn er breyttur og við þurfum að horfast í augu við það og vera líka tilbúin til að bregðast við fyrir Ísland og þau gildi sem við viljum standa fyrir. Þá þurfum við að vera raunsæ, lausnamiðuð og prinsippföst í leiðinni.

Hvert sem við lítum eiga alþjóðalög og mannréttindi, alþjóðaviðskipti, samstarf um öryggis- og varnarmál, þróunarsamstarf og mannúðaraðstoð undir högg að sækja. Stórveldi sækja í sig veðrið og beita oftar en ekki aflsmunum í samskiptum sínum við önnur ríki líkt og þau geti, eins og ég gat um áðan, endurteiknað, endurhannað heiminn eftir eigin höfði með stuðningi af og til frá hinum og þessum þjóðum, oftar en ekki eftir að þær hafa verið beittar þrýstingi eða ákveðnum ógnum. Við erum þannig að upplifa hraðar breytingar í alþjóðaöryggismálum sem eiga sér fáar hliðstæður í lýðveldissögunni og því miður, frú forseti, eru ekkert endilega mjög mörg jákvæð teikn á lofti. Ég verð þó að segja að síðustu daga hefur verið sterkt að sjá hvernig Evrópuríkin hafa staðið saman og talað einni röddu, til að mynda með því að ýta undir fullveldi og sjálfsákvörðunarrétt Grænlands og treysta stuðninginn við Danmörku. Síendurteknar yfirlýsingar Bandaríkjaforseta um yfirtöku á Grænlandi er fordæmalaus framganga gegn nánu bandalagsríki. Það var gott að heyra að í gær virðist spennustigið aðeins hafa lækkað en ég vil líka draga fram það sem Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur, setti fram í fréttatilkynningu nú áðan, að NATO er alveg fullkunnugt um hverjar eru forsendur, hverjar eru rauðu línur Danmerkur. Danmörk hefur að sjálfsögðu alltaf lýst sig reiðubúna til þess að semja um fjárfestingar, til að semja um öryggi, semja um efnahagsmál, en það er Danmerkur og Grænlands að ræða Grænland. Það er Grænlendinga sjálfra að ákveða hvert þeir vilja fara og það verður ekki annarra en þeirra að ákveða hvernig þeirra fullveldi er beitt og ég vona að það sé samstaða um það hér í þessum sal. Ég vil undirstrika það að grundvallarafstaða íslenskra stjórnvalda, ríkisstjórnarinnar, hefur alveg verið skýr og hún er að það sé Grænlendinga sjálfra að ákveða framtíð Grænlands. Það er þeirra að segja hver þeirra vilji er og hann hefur komið alveg skýrt fram: Grænland er ekki til sölu. Grænland er ekki til sölu og afstaða okkar með þeim er skýr og hún er óbreytt. Ef við stöndum ekki með Grænlandi erum við ekki að standa með sjálfum okkur.

Við Íslendingar leggjum alltaf áherslu á mikilvægi þess að virðing sé borin fyrir friðhelgi landamæra og sjálfsákvörðunarrétti þjóða, enda eigum við allt undir því. Við höfum beitt rödd okkar í auknum mæli til að undirstrika mikilvægi alþjóðalaga og við stöndum vörð um réttarríkið og sjálfstæði alþjóðlegra dómstóla, það veitir ekki af núna. Við sjáum að ekkert lát er á hernaðarhyggju Rússlands sem beitir fyrir sig hefðbundnum hernaði gegn Úkraínu með stórfelldu landvinningastríði. Stríðið hefur auðvitað breytt öryggisumhverfi okkar í Evrópu og hugur okkar, hugur minn, er hjá úkraínsku þjóðinni sem hefur sýnt ótrúlegt hugrekki á krefjandi tímum, hugrekki sem er eftirtektarvert og til eftirbreytni. Nú er nístingskuldi í Úkraínu og þá lætur Pútín höggin dynja. Við megum ekki gleyma Úkraínu í öllum þessum darraðardansi sem er um allt. Við verðum ótvírætt að halda áfram að styðja við hana því að ef við látum undan svona yfirgangi og ofbeldi, ef því er ekki svarað, þá munu hrottarnir að mínu mati taka yfir. Það er ekki valkostur fyrir Úkraínu og það er ekki valkostur fyrir okkur Íslendinga.

Um leið horfum við líka upp á hryllinginn á Gaza, neyðarástand í Súdan, Afganistan, Jemen og víðar og ekki síður dráp íranskra stjórnvalda á mótmælendum. Við horfum einnig upp á vaxandi sundurlyndi innan smærri og stærri ríkja. Við sjáum að öfgahreyfingum vex fiskur um hrygg og fræjum popúlisma er því miður sáð æ víðar. Það er aðför að mannréttindum, lýðræði og frelsi einstaklingsins. Allt eru þetta gildi sem við Íslendingar höfum verið svo hugrökk að tala fyrir á hvaða tíma sem er. En það er bakslag núna einmitt á þessu sviði, jafnvel í ólíklegustu löndum.

Við þurfum líka að hafa í huga að fjölþáttaaðgerðir Rússa eru daglegt brauð í bandalagsríkjum. Þess vegna er Evrópa núna í forystu gegn þeim hernaði þegar kemur að fjölþáttaógnum og hefur verið að styrkja sig verulega þar. Við þurfum líka að vera vakandi og huga að því hvernig við getum varist slíkum árásum, hvort sem um er að ræða netárásir, ógnir gegn neðansjávarinnviðum eða upplýsingaóreiðu sem miðar að því að ýta undir ósætti og sundrungu í samfélaginu. Við þurfum að styrkja Landhelgisgæsluna, sérsveitina, ríkislögreglustjóra, netöryggissveitina. Allt þetta þurfum við að gera til að treysta innviði okkar. Svo vitum við auðvitað að Kína er á sama tíma að sækja í sig veðrið alþjóðlega og ekki síður á hernaðarsviðinu, bæði í sínum heimshluta eins og við sjáum í Taívan og á Suður-Kínahafi, en líka með fjárfestingum, njósnum og ýmsum fjölþáttaaðgerðum, m.a. í Evrópu.

Virðulegur forseti. Landfræðileg staða Íslands er og verður áfram hernaðarlega mikilvæg fyrir öryggi Norður-Ameríku og Evrópu. Ef eitthvað er þá er hernaðarlegt mikilvægi Íslands að aukast. Því mun aukin spenna og hugsanleg átök hafa bein eða óbein áhrif á Ísland, hvort sem okkur líkar betur eða verr. Átök og spenna á öðrum svæðum hafa einnig óbein áhrif vegna flutningaleiða og alþjóðaviðskipta. Öll bandalagsríki Atlantshafsbandalagsins eru að auka getu sína til að takast á við þessa nýju og breyttu heimsmynd sem ég var að draga upp og við erum að sjá yfirlýsingar á milli ríkja, við ríkjasambönd o.s.frv., allt fyrir ríkin til að treysta eigin stöðu og líka innra öryggi. Samstaða og góð tengsl yfir Atlantshafið er afgerandi hagsmunamál fyrir Ísland eins og önnur ríki Atlantshafsbandalagsins, hér eftir sem hingað til. Á sama tíma er ljóst að Evrópa er og hefur verið að axla auknar byrðar og taka ábyrgð á vörnum álfunnar og það þarf hún líka að gera. Öll ríki NATO hafa aukið framlög til varnarmála og samþykkt að verja 5% af vergri landsframleiðslu til fælinga og varna. Þar kemur til þrýstingur frá Bandaríkjunum en ekki síður mat Evrópu sjálfrar á ógninni, nauðsyn þess að búa sjálf yfir mætti til að geta tryggt eigið öryggi og þurfa ekki í einu og öllu að reiða sig á Bandaríkin. Ég tek undir þessa nálgun.

Ísland treystir nú sem fyrr á samstarf við aðrar þjóðir þegar kemur að vörnum landsins. Það þýðir að aðrar þjóðir gangast undir ábyrgð á hernaðarlegu öryggi landsins á meðan Ísland ver hverfandi upphæðum í varnar- og öryggismál. Sú hugsun gengur ekki lengur ef við ætlum að sýna ábyrgð, ef við ætlum að sýna ábyrgð og tryggja eigið fullveldi og okkar sjálfsákvörðunarrétt. Að lágmarki þurfum við að gera allt, að lágmarki, sem við getum til að auðvelda öðrum ríkjum sem hingað koma til að hjálpa okkur í neyðarástandi eða hugsanlegum stríðsátökum að hjálpa okkur. Mestu skiptir fyrir okkur núna að fjárfesta áfram í innviðum, og við þurfum að gera það markvisst, í tækni, getu, þekkingu og líka í þeim stofnunum sem ég nefndi hér áðan. Allt nýtist þetta okkur síðan í borgaralegri getu til að treysta okkar eigið áfallaþol. Það fer saman að líta á þetta í stóru og breiðu samhengi því að við viljum vera verðugur bandamaður, ekki einhver sem bara kallar til ríki þegar neyðin er. Við viljum geta tekið þátt og líka stutt okkar vinaríki, bæði með orðum eins og við höfum verið að gera, með staðfestu eins og við höfum verið að gera með Grænlendingum, en líka með öðrum hætti. Eins og við vitum erum við sjálfstætt fullvalda ríki og í því felst að við berum ábyrgð á eigin örlögum Við slíkar aðstæður og þær sem nú eru uppi þá skiptir verulegu máli að við höfum getu og burði til að standa vörð um eigin hagsmuni.

Ég vil aðeins í þessu samhengi nefna þrennt sem þingmannanefndin um varnar- og öryggisstefnu landsins hefur dregið fram og áréttað í stefnunni sem liggur fyrir Alþingi. Við eigum í fyrsta lagi að efla þátttöku í alþjóðlegu samstarfi til að verja okkar hagsmuni, það skiptir mjög miklu máli, og mikilvægt er að auka pólitískt samstarf. Í öðru lagi verðum við að gera meira sjálf, eins og ég hef nefnt, auka getu okkar til sjálfstæðra greininga og stöðumats, efla varnartengda innviði, gistiríkjastuðning okkar, styrkja okkar viðbragðsaðila o.s.frv. Í þriðja lagi þurfum við að rýna þau verkfæri sem ríkið hefur, hvort sem það eru lög eða stofnanir, til að tryggja bæði skilvirkni og hagkvæmni.

Ólga og óvissa einkennir alþjóðaviðskiptin. Við stöndum líka frammi fyrir breyttum veruleika þar og vendingar síðustu daga bera það með sér þar sem tollum er beitt af handahófi og því miður í refsingarskyni gagnvart m.a. ríkjum sem eru nánir bandamenn og hafa verið í meira en 80 ár, þar sem við horfum upp á ákveðna vopnavæðingu viðskipta og þar sem hentistefna virðist ráða meira ríkjum heldur en gegnsæi, traust, fyrirsjáanleiki. Það er ekkert verra í alþjóðlegum viðskiptum, en líka fyrir okkar fyrirtæki, líka fyrir okkar íslensku efnahagslegu hagsmuni, en óvæntar uppákomur sem draga úr stöðugleika og fyrirsjáanleika. Aukin verndarhyggja er ekki hvað síst drifin áfram af togstreitu stórvelda sem beita fyrir sér öryggissjónarmiðum þegar þau setja á viðskiptahömlur. Þessi þróun getur leitt til þess að heimurinn skiptist upp í viðskiptablokkir, þessi stórveldasýn sem sumum hugnast svo þægilega, en það yrði að mínu mati mjög skaðlegt fyrir Ísland að lenda á milli eða verða utan gátta. Þess vegna verðum við að reiða okkur á gerða samninga, tala ótvírætt fyrir því að við stöndum við mikilvæga samninga, EES-samninginn. Það veitir ekki af núna að tala skýrt miðað við ýmsa tóna sem maður er að heyra frá m.a. stjórnarandstöðunni hvað það varðar. Við þurfum að tryggja tvíhliða samninga líka, sem við höfum verið að gera, og við þurfum að halda áfram að byggja upp samstarf bæði vestur yfir og austur yfir. Við þurfum að vera kvik og við þurfum að byggja upp enn frekar þessa hagsmunagæslu okkar.

Ég segi: EES-samstarfið er gríðarlega mikilvægt. Það er algjört lykilsamstarf núna í þessu tilliti, að það haldi, og líka að við séum ótvírætt í þeirri vegferð okkar að standa við hann. En þrátt fyrir það verðum við að spyrja okkur hvort EES-samningurinn sé nóg. Hann er að mínu mati algjört lágmark. Hann er lágmarkið til að tryggja íslenska hagsmuni og reyna að minnka óvissuna sem atvinnulífið stendur nú frammi fyrir.

Ég mun beita mér fyrir öllum leiðum sem eru í þágu íslenskra hagsmuna, hvernig við tryggjum sem best frelsi og fullveldi landsins. Við eigum ekki að hlaupast undan þeim merkjum að skoða alla möguleika, þar með talið, já, að huga að aðildarviðræðum við Evrópusambandið, fá að vita meira, hvort við getum ekki fjölgað stoðunum undir vörnum okkar, undir efnahagslífi okkar og pólitísku samstarfi. En það er auðvitað þjóðin sem ræður því. Þessi ríkisstjórn treystir þjóðinni. Það er dýrmætt samband að geta treyst þjóðinni og að treysta henni ekki eru svik við hana. Að mínu mati eru það svik við þjóðina að þora ekki að treysta henni. Á örlagatímum eins og eru núna ber okkur skylda til þess, fordæmalaust, að endurhugsa stöðu Íslands í þessum hverfula heimi. Við eigum, af því að við stöndum frammi fyrir aðstæðum þar sem ríki sem eru ekki stórveldi standa frammi fyrir nokkuð skýru vali, og ég hvet ykkur til að lesa ræðu Mark Carneys á Davos þar sem hann fór frábærlega yfir þá stöðu sem við stöndum frammi fyrir og við Íslendingar og þessi ríkisstjórn hefur í rauninni verið að vinna nákvæmlega eftir því plani. Við vitum að við erum með tvær grunnstoðir í varnarmálum en við höfum einmitt verið að auka samstarfið, gera tvíhliða yfirlýsingar, eiga í samstarfi og samtali bæði við Evrópusambandið og Kanada og fleiri þjóðir til þess einmitt að tryggja og treysta stöðu Íslands í hverfulum heimi. Þangað ætlum við að halda og við ætlum að halda áfram á þeirri braut. Það væri óþolandi fyrir okkur Íslendinga og ekki boðleg staða ef við, smáríkin eða meðalstóru ríkin, ætluðum að keppa um hylli hinna sterku og síðan bíða þæg og róleg eftir því að molar af gnægtarborði þeirra féllu af og til til litlu og meðalstóru ríkjanna. Þá þurfum við einmitt að endurskoða og endurskipuleggja okkur aðeins upp á nýtt, m.a. til þess að horfast í augu við þá mynd sem er að teiknast upp. Við þurfum að vera lausnamiðuð, við þurfum að vera raunsæ og við þurfum að vera prinsippföst. Það er það sem við þurfum að vera. Við þurfum að halda áfram að treysta böndin við Bandaríkin og við erum í samtali núna, m.a. kom ráðuneytisstjórinn heim í morgun og átti góð samtöl vestur um haf þar sem við erum að byggja upp samtalið þegar kemur að viðskiptamálunum, tollunum, hvað það er sem við getum átt í gagnkvæmu sambandi um. En þetta eru gagnvegir. Þetta er ekki einstefna stóru ríkjanna gagnvart Íslandi. Þegar við erum að nálgast hvaða ríki sem er þá göngum við út frá því að það séu gagnvegir, ekki einstefna. Þar eru jákvæðir tónar sem koma úr þeirri ferð og það skiptir mjög miklu máli.

Við eigum auðvitað að halda áfram að treysta á EES-samstarfið og við eigum að halda áfram að standa vörð um NATO. En við verðum líka að þora að horfast í augu við þann veruleika sem við blasir og hann er sá að við Íslendingar þurfum að treysta stöðu okkar núna í þeim heimi sem við stöndum frammi fyrir. Hvernig tryggjum við best okkar efnahagslega öryggi, með m.a. okkar kviku krónu sem við þekkjum mjög vel að getur komið í bakið á íslenskum heimilum? Hvernig treystum við efnahagslegt öryggi landsins, heimilanna okkar og litlu og meðalstóru fyrirtækjanna? Hvernig tryggjum við varnar- og öryggismál okkar Íslendinga? Hvernig tryggjum við pólitískt öryggi okkar? Það sést alveg á því sem nú er verið að gera að hinn pólitíski þröskuldur þarf að hækka til að við getum staðið í ákveðnu ati, ákveðinni prinsippstöðu gagnvart þeim stórveldum sem eru að taka meira og meira til sín.

Þetta er stórt og mikið verkefni sem við í stjórnmálunum stöndum frammi fyrir og við verðum að hafa kjark og hugrekki til þess að nálgast það fordómalaust, ekki með kreddum, heldur alltaf að skoða hvernig við getum tryggt öryggi Íslands. Í þessari stöðu gerum við það best að mínu mati — af því að við erum að fjölga eggjunum, við erum að fjölga leiðum til að ýta undir grundvallarstoðir okkar Íslendinga, varnarlega, efnahagslega, félagslega og þá verðum líka að þora að treysta þjóðinni fyrir næstu þjóðaratkvæðagreiðslu, til þess að hún fái að vita meira og það séu ekki bara við hér í þessum sal sem skömmtum þeim upplýsingar, misgóðar, misréttar upplýsingar. Að þjóðin sjálf fái milliliðalaust að vita meira og taki þátt í því með okkur að tryggja öryggi okkar, varnir, efnahag og samstöðu, ekki síst með þeim gildum sem við Íslendingar höfum staðið frammi fyrir. Við eigum að vera og skipa okkur í sveit þeirra þjóða í Evrópu sem einmitt standa vörð um þau gildi sem eru okkur mikilvæg og gera okkur að þjóð meðal þjóða.