Staða alþjóðamála, munnleg skýrsla utanríkisráðherra.
Virðulegi forseti. Ríkisstjórnin er svo sannarlega með augun á boltanum þegar kemur að heimilum landsins, þegar kemur að því að lækka verðbólgu og vexti. Það er ákveðin tiltekt í gangi sem þurfti að fara í og við erum í henni. Það þarf stundum að taka erfiðar ákvarðanir, hvort sem það er á rólyndistímum en ekki síður á örlagatímum. Við erum, þegar kemur að efnahagsmálunum, að gera allt til þess einmitt að tryggja undirstöður íslensks efnahags, íslenska ríkissjóðsins líka og við höfum innleitt m.a. stöðugleikareglu, við höfum innleitt meira aðhald. Við höfum farið í hagræðingaraðgerðir, við erum að fara í sameiningar stofnana sem fyrri ríkisstjórn treysti sér ekki í o.s.frv. Sú retorík og sú aðferðafræði sem birtist hér hjá formanni Sjálfstæðisflokksins er, öðruvísi mér áður brá, nákvæmlega sama retoríkin og vinstri menn notuðu m.a. í mótmælunum hér 30. mars 1949: Við máttum ekki fara inn í NATO, við máttum ekki ganga í Atlantshafsbandalagið af því að þetta var ekki rétti tíminn, það væri mikill óróleiki. Ég held að ég hafi aldrei verið jafn stolt af forystufólki í íslenskum stjórnmálum og þá, sem einmitt tók þá ákvörðun að beita fullveldi Íslands, til að styrkja fullveldið með því að eiga sæti við borðið. (Forseti hringir.) Þannig að ég tel að ef og þegar við tökum þessa ákvörðun þá sé hún fyrst og síðast byggð á því að treysta fullveldi landsins, treysta þjóðinni. (Forseti hringir.) Mér finnst gott að heyra að Sjálfstæðisflokkurinn treysti þjóðinni núna. (Forseti hringir.) Það var ekki þannig hér fyrir tæpum tíu árum síðan. En það er gott að vita að við erum þó komin þangað.
(Forseti (BergÓ): Forseti minnir á að þegar fjórir þingmenn hafa óskað eftir andsvari er ræðutíminn ein mínúta í hvort skipti.)