157. löggjafarþing — 58. fundur,  22. jan. 2026.

Staða alþjóðamála, munnleg skýrsla utanríkisráðherra.

[11:38]
Horfa

utanríkisráðherra (Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir) (V) (andsvar):

Virðulegi forseti. Árið 2024 voru kosningar, það er rétt. Hér talar formaður Sjálfstæðisflokksins eins og ekkert hafi gerst í heiminum síðan þá, eins og við eigum ekki að skoða stöðu Íslands á hverjum einasta degi, hvernig hægt er að styrkja hana betur og betur. Ég er ósammála þessari nálgun og ég er líka ósammála þeim sem hafa verið úti í samfélaginu og eru líka hér meðal stjórnarandstöðunnar, um að við eigum bara að stinga höfðinu í sandinn, við eigum bara að vera róleg. Það sorglega við sumar yfirlýsingar sem hafa komið, m.a. frá öðrum stjórnarandstöðuflokkum, er að við eigum bara helst ekkert að segja neitt sem styggir einn eða neinn og ekki taka eindregna afstöðu með Grænlandi. Það hryggir mig. En ég bíð líka eftir því hvað það er sem Sjálfstæðisflokkurinn vill gera. Hvað vill hann gera í þessari stöðu? Ég segi bara við Sjálfstæðisflokkinn: Hvar hafa dagar lífs þíns lit sínum glatað?