157. löggjafarþing — 58. fundur,  22. jan. 2026.

Staða alþjóðamála, munnleg skýrsla utanríkisráðherra.

[11:41]
Horfa

utanríkisráðherra (Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir) (V) (andsvar):

Virðulegi forseti. Mér finnst svolítið merkilegt að heyra það að Sjálfstæðisflokkurinn, hver þingmaðurinn á fætur öðrum sem kemur hingað upp, treystir ekki þjóðinni heldur fer frekar þá leið að ýta undir að það sé eitthvað sem muni kljúfa þjóðina. Út á hvað gengur sú atkvæðagreiðsla sem við erum að tala um? Hún gengur út á það að það verði ekki málflutningur bara frá hv. þingmönnum hér í þessum sal og frá hagsmunaöflum sem þar standa að baki, heldur að þjóðin fái að vita meira á þessum örlagatímum. Það eru íslenskir hagsmunir, það er staða Íslands í hverfulum heimi núna sem kallar á það að við ræðum þetta fordómalaust, ekki með einhverjum útúrsnúningum og einhverri hysteríu héðan úr þessum ræðustól. Það er það sem við erum að kalla eftir; að það verði dregin fram málefnaleg umræða um raunverulega stöðu Íslands í þeim heimi sem við stöndum frammi fyrir. Heimsmyndin er gjörbreytt, ef þingmenn Sjálfstæðisflokksins (Forseti hringir.) hafa ekki tekið eftir því. En ég mun koma inn á EES-samninginn í mínu seinna andsvari.