157. löggjafarþing — 58. fundur,  22. jan. 2026.

Staða alþjóðamála, munnleg skýrsla utanríkisráðherra.

[11:42]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Það hefur aldrei komið sekúnda í lífi hæstv. ráðherra sem ekki hefur verið rétti tímapunkturinn að ganga í ESB, aldrei, ekki nema bara þegar hún var að spila — það skiptir ekki máli. Kannski þá bara mjög ung að aldri. Það er alltaf rétti tíminn. Hæstv. ráðherra segir: Nú ætlum við að fara í málefnalega umræðu. Hæstv. ráðherra fékk 20 milljónir til þess að ýta undir umræðu. Hvað gerði hæstv. ráðherra við 20 milljónirnar? Hún braut lög um opinber fjármál og gaf vini sínum 10 milljónir og einhverjum samtökum sem hún taldi að myndu ekki hjálpa þeim málstað sem bentu á það að hagsmunum Íslands væri ekki best borgið innan Evrópusambandsins. Þetta eru vinnubrögðin, virðulegi forseti. Hæstv. ráðherra þorir aldrei að tala um ESB. Ég skora á hæstv. ráðherra að þora að mæta mér einhvern tíma í útvarpsþætti eða á opinberum vettvangi til að ræða þau mál. Ég veit ekki hvernig hæstv. ráðherra ætlar að reyna að tala sig út úr því að tala niður EES-samninginn en það er þannig, virðulegi forseti, að ef við trúum á EES-samninginn þá segjumst við vilja vera í EES-samningnum. Hæstv. ráðherra gerir það ekki. Hæstv. ráðherra vill að við drepum EES-samninginn (Forseti hringir.) og förum úr honum og göngum í Evrópusambandið og flytjum þar af leiðandi völd sem við höfum til Brussel, fjármuni sem við höfum til Brussel, því að um það snýst málið.