157. löggjafarþing — 58. fundur,  22. jan. 2026.

Staða alþjóðamála, munnleg skýrsla utanríkisráðherra.

[11:47]
Horfa

utanríkisráðherra (Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir) (V) (andsvar):

Virðulegi forseti. Til að taka af öll tvímæli þá er sambandið og samstarfið við Bandaríkin, ekki síst á sviði varnar- og öryggismála, mjög gott. Við höfum líka haft mjög mikil samskipti og eins og ég gat um áðan var ráðuneytisstjórinn að koma úr mjög góðri ferð sem tengist viðskiptum og fleiru við Bandaríkin. Það hefur ítrekað verið kallað eftir fundum með æðstu ráðamönnum í Bandaríkjunum en það verður líka að segjast eins og er að þegar við tökum upp símann og hringjum þá svarar Evrópa. Það er miklu auðveldara að fá fundi, fá samtöl og samræður um mál sem við erum sammála eða ósammála um og fá þetta samtalsspil sem er mjög mikilvægt í hinu pólitíska samhengi.

Ég ætla ekki að fara að ræða þau orðaskipti sem hafa átt sér stað við fyrrum forseta lýðveldisins. Ég veit það eitt að það er mín skoðun að það er ekki rétt hjá okkur Íslendingum, það er ekki skynsamlegt í ljósi okkar hagsmuna og okkar stöðu sem smáríkis á þessum tímum, að setja þögul hjá og segja ekki neitt, til að mynda þegar Grænland á í hlut. Við þurfum að tala skýrt með vinum okkar. Það er nefnilega hægt að gera tvennt: (Forseti hringir.) Það er hægt að vera róleg og yfirveguð, eins og þessi ríkisstjórn hefur verið þegar reynt hefur á, (Forseti hringir.) en það er líka hægt samhliða að vera föst á prinsippunum og þeim grundvallargildum sem hafa hingað til sameinað okkur Íslendinga. (Forseti hringir.) Það er hægt að gera þetta tvennt, vera yfirveguð og vera með skýr skilaboð um okkar prinsipp.

(Forseti (BergÓ): Forseti minnir bæði þingmenn og ráðherra á að ræðutíminn er ein mínúta þegar fjórir hafa óskað eftir andsvari.)