157. löggjafarþing — 58. fundur,  22. jan. 2026.

Staða alþjóðamála, munnleg skýrsla utanríkisráðherra.

[11:50]
Horfa

utanríkisráðherra (Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir) (V) (andsvar):

Virðulegi forseti. Samtöl og samvinna er mjög sterk og mjög góð við Bandaríkin og það er ítrekað í ýmsum málum sem við höfum einmitt látið reyna á það og það er gott að finna að það er ekki bara einstefna heldur er verið að hlusta á það sem við erum að segja, hvort sem það er í viðskiptamálum en líka þegar tengist okkar vörnum og öryggi. Ég get ekki ímyndað mér hvernig okkur hefði liðið ef einhver þjóð ætlaði sér hugsanlega að taka Ísland yfir og þingmenn á Norðurlöndunum hefðu sagt: Nei, við skulum bara bíða og doka og ekki segja neitt. Við skulum bara vera róleg en ekki segja neitt. Ef við hefðum upplifað það að það hefði ekki verið eining til að mynda meðal Norðurlandanna og þau hefðu ekki verið með okkur í liði. Þess vegna skiptir máli að stíga fast niður þegar vegið er að okkar grundvallarprinsippum. Ég skora á stjórnarandstöðuna að vera með okkur þegar kemur að því.

Þessi umræða verður alltaf áhugaverðari og áhugaverðari en mér finnst hún líka vera að draga fram ákveðna mynd sem er að teiknast upp hér í þinginu (Forseti hringir.) og það er ágætt líka að þjóðin fái að upplifa það.