Staða alþjóðamála, munnleg skýrsla utanríkisráðherra.
Virðulegi forseti. Ég fór nú bara og kíkti aftur á dagskrána, sá að umræðan heitir: Staða alþjóðamála. Ég gat ekki betur heyrt en að ráðherrann legði af stað inn í ræðuna með þeim hætti en síðan hefur öll umræðan, seinni hluti ræðu hæstv. utanríkisráðherra og allt það sem fer fram í þessum sal, snúist um eitthvað allt annað. Ég hélt að þessi umræða ætti að snúast um að við værum að taka fyrir þessa alvarlegu stöðu í alþjóðamálum og sýna hvar við værum stödd, þingið, sýna fram á samvinnu og samstöðu. Hver er að hrópa um það að við stöndum ekki með Grænlendingum? Það er hæstv. ráðherra í umræðu um stöðu alþjóðamála sem ráðherrann hefur frumkvæði að. Ég verð að segja alveg eins og er að ég átta mig ekki alveg á því hvert þessi umræða er að fara en ég mun í minni ræðu á eftir fara yfir þetta.
Spurning mín til ráðherrans er einfaldlega þessi: Er það virkilega skoðun ríkisstjórnarinnar að það sé best akkúrat á þessum tímapunkti að velja einhverja viðskiptablokk til að ganga til liðs við?