Staða alþjóðamála, munnleg skýrsla utanríkisráðherra.
Virðulegi forseti. Ég vil að því leytinu til taka undir með hv. þingmanni og formanni Framsóknarflokksins að við þurfum að ræða heimsmálin. Hluti af því er að ræða hluti sem eru mjög viðkvæmir greinilega hjá ákveðnum stjórnarandstöðuflokkum og -þingmönnum. Hluti af því er að horfa kinnroðalaust framan í þá veröld sem við blasir í dag og þess vegna þurfum við að snerta á mjög mörgum flötum sem kunna að vera óþægilegir fyrir hvert og eitt okkar en við megum ekki skorast undan því. Þess vegna spyr ég sjálfa mig eftir að hafa hlustað á stjórnarandstöðuna í dag, fram að þessu og ekki komið hádegi: Hvað vilja þau gera? Við erum sammála. Við ætlum að treysta NATO og byggja undir það. Þess vegna er öll okkar nálgun, til að mynda varðandi Grænland, sú að allt sem viðkemur Grænlandi verði gert á þeirra forsendum, grænlenskum forsendum og í samstarfi og bandalagi við NATO. Við eigum að treysta samskiptin enn frekar við Bandaríkin. Við eigum að treysta það viðskipta- og varnarsamstarf sem við höfum og þær yfirlýsingar sem við höfum lýst við aðrar þjóðir, hvort sem það er í Evrópu, við Kanada eða aðra. Og við eigum að þora að tala um það hvort okkur Íslendingum sé betur borgið í samstarfi þjóða sem vill svo til að falla undir Evrópusambandið, samband sem er að tryggja efnahagslegt öryggi álfunnar, félagslegt en ekki síður varnarlegt öryggi og er að sækja í sig veðrið af raunsæi vegna þess sem sambandið stendur frammi fyrir. Af hverju má ekki ræða það sem hluta af þeirri mynd að styrkja stöðu okkar Íslendinga? Við hljótum að vera þroskaðri en svo, nógu þroskuð til að höndla þennan veruleika og það ástand sem við stöndum frammi fyrir,
(Forseti (BergÓ): Forseti minnir á að ræðutími er ein mínúta, en ekki ein mínúta og fimmtíu sekúndur.)