157. löggjafarþing — 58. fundur,  22. jan. 2026.

Staða alþjóðamála, munnleg skýrsla utanríkisráðherra.

[11:55]
Horfa

Sigurður Ingi Jóhannsson (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég ætla bara að taka hæstv. ráðherra á orðinu og segja: Já, af hverju má ekki ræða það? En höfum það þá bara undir öðrum lið, blöndum ekki öllu saman. Hér ætla ég bara að halda því fram að allir flokkar á þinginu standi á bak við Grænland og þær yfirlýsingar sem ríkisstjórnin hefur gert um það. Hæstv. ráðherra er hér að fabúlera um það að stjórnarandstaðan sem ein heild sé ekki að gera það. Ég ætla að mótmæla því fyrir hönd stjórnarandstöðunnar, alla vega fyrir hönd Framsóknarflokksins. (Gripið fram í.)Ég hef bara ekki talað þannig. Ég hef hins vegar sagt: Ef við ætlum að fara að ræða um inngöngu Íslands í Evrópusambandið vegna þessara aðstæðna þá skulum við setja það á dagskrá en verum ekki að fela það undir lið um stöðu alþjóðamála, þar sem var kannski tilgangurinn að taka umræðu í þessum sal og senda þau skilaboð frá Alþingi Íslendinga að það sé samstaða á Íslandi um að verja sjálfstæði og fullveldi Grænlands og sjálfstæði Íslands (Gripið fram í: Heyr, heyr. )í þeim ólgusjó sem við erum stödd í, en ekki að nota þetta tækifæri til að hræða fólk í að fara að ganga inn í eitthvert viðskiptasamband. Nú er ég bara að segja eitthvert vegna þess að það getur verið umræða um hvert á að fara, væntanlega.