157. löggjafarþing — 58. fundur,  22. jan. 2026.

Staða alþjóðamála, munnleg skýrsla utanríkisráðherra.

[11:56]
Horfa

utanríkisráðherra (Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir) (V) (andsvar):

Forseti. Mér finnst gott að það hafi komið fram þessi sjónarmið frá Framsóknarflokknum því að það eru ekki allir flokkar í stjórnarandstöðunni sem tala með þeim hætti eða treysta sér til að tala með þeim hætti að það sé alveg skýrt og óyggjandi að við öll hér í þessum sal stöndum með Grænlendingum og þorum að segja það á hvaða tíma sem er.(Gripið fram í.) Bara þannig að það sé sagt (GHaf: Þetta er ómaklegt) hér í þessum sal. Það er ástæða til þess að svo sé gert. Hitt er síðan að það sem við erum að upplifa hér — ég dreg fram að það sem við erum að segja til að mynda um umræðuna um Evrópusambandið er: Já, það eru viðskiptastríð í gangi. Þjóðin þarf að átta sig á því hvar okkur er best fyrir komið þegar viðskiptastríð er í gangi og önnur stríð í gangi. Hvað er svona viðkvæmt við það að spyrja þjóðina um nákvæmlega það? Hvað er svona viðkvæmt við það að vita meira? Út á það gengur þetta, að vita meira, kortleggja hlutina eins og þeir eru. Mér finnst erfitt að upplifa þá afneitun sem er að koma fram af hálfu stjórnarandstöðunnar um það að heimsmyndin er breytt.