157. löggjafarþing — 58. fundur,  22. jan. 2026.

Staða alþjóðamála, munnleg skýrsla utanríkisráðherra.

[11:57]
Horfa

Sigríður Á. Andersen (M) (um fundarstjórn):

Virðulegur forseti. Mér er nokkuð misboðið vegna ummæla hæstv. utanríkisráðherra í andsvari sínu við hv. þm. Sigurð Inga Jóhannsson, þar sem hún fullyrðir að hér séu flokkar á þingi sem hafi talað með öðrum hætti en hv. þm. Sigurður Ingi Jóhannsson gerði hér þegar hann lýsti yfir fullum stuðningi við Grænlendinga í sinni sjálfstæðisbaráttu og fullveldisbaráttu. Ég óska eftir að hæstv. utanríkisráðherra komi hér og tali með skýrari hætti og upplýsi um það hverjir það eru nákvæmlega hér á þingi sem hafa talað með öðrum hætti en það. Eins og hefur verið bent á hér þá hefur ekki komið neitt fram á Alþingi, ekki í máli nokkurra þingmanna, annað en að hér sitji allir hv. þingmenn sem lýsa yfir fullum stuðningi við Grænlendinga í sínum málum. Og margir hverjir hafa gert það mun lengur en hæstv. utanríkisráðherra í þeirri baráttu sem Grænlendingar hafa átt í, miklum mun lengur en vegna þeirra atburða sem hafa verið uppi undanfarnar vikur. Ég frábið mér a.m.k. fyrir hönd Miðflokksins þennan málflutning hæstv. utanríkisráðherra í garð stjórnarandstöðunnar.