Staða alþjóðamála, munnleg skýrsla utanríkisráðherra.
Virðulegi forseti. Það er með ólíkindum að sitja hér undir orðum hæstv. utanríkisráðherra þar sem hún brigslar stjórnarandstöðunni um það að standa ekki með Grænlendingum á þessum dauðans óvissutímum. Mér er svo freklega misboðið að ég ætlast til þess að hæstv. ráðherra biðji stjórnarandstöðuna afsökunar. Hvað meinar utanríkisráðherra þegar hún segir að hér hafi þingmenn stjórnarandstöðunnar ekki lýst yfir stuðningi við Grænlendinga í þeirri baráttu og þeirri alvarlegu stöðu sem Grænlendingar hafa verið? Ég vil að hæstv. ráðherra svari því hver hefur sagt það og hvenær. Það er ekki hægt að taka mark á ráðherrum í ríkisstjórn Íslands sem koma hér upp og fara með svona alvarlegar ásakanir á hendur stjórnarandstöðunni. Ég óska eftir því að ráðherra biðjist afsökunar á orðum sínum.