Staða alþjóðamála, munnleg skýrsla utanríkisráðherra.
Herra forseti. Hæstv. utanríkisráðherra heyrir raddir. Hann veit ekki alveg hvaðan þær koma eða hvað þær eru að segja, en þær valda hæstv. ráðherra miklum ama og fyrir vikið tjáir hæstv. ráðherra sig hér án þess í raun, að því er virðist, vita hvað þessar raddir eru að segja. Ráðherra gefur sér að þær komi jafnvel innan úr þessum sal og séu að segja eitthvað neikvætt um Grænland eða lýsa efasemdum um stuðning Íslands við Grænland. Eins og fleiri hv. þingmenn hafa bent á hér þá held ég að það sé óhætt að gera ráð fyrir því að það sé full samstaða á Alþingi Íslendinga um stuðning við Grænland, en menn geta hugsanlega haft ólíkar skoðanir á því hvernig sá stuðningur er best veittur. Ég er ekki þeirrar skoðunar að það sé best að styðja við Grænlendinga með því að leggja alla áherslu á að ganga í Evrópusambandið, frekar að standa með Grænlendingum hér, tvær frjálsar þjóðir utan Evrópusambandsins sem vinni sem best saman á sem flestum sviðum.