Staða alþjóðamála, munnleg skýrsla utanríkisráðherra.
Virðulegi forseti. Ég tel einmitt mikilvægt að það verði umræða um alþjóðamálin og að það náist vonandi sem mest samstaða. Samstaða þýðir þó ekki að við megum ekki ræða mál sem eru greinilega mjög viðkvæm í röðum sumra þingmanna. Að kalla eftir almennri umræðu um alþjóðastjórnmál og um það að reyna að kalla eftir samstöðu hér í þinginu þýðir ekki að setja pottlok ofan á umræðu. Mér finnst mjög mikilvægt að þessi umræða hafi leitt í ljós að þingflokkur Miðflokksins er búinn að undirstrika samstöðu sína með Grænlandi því ég hef fengið að heyra það í þessum þingsal að ég eigi að fara varlega í yfirlýsingar. Ég hef fengið að heyra það frá þingmönnum, m.a. Miðflokksins, utan þingsalar, að ég eigi ekki að vera með (Gripið fram í.) digurbarkalegar yfirlýsingar. Ég hef fengið að heyra það. Við þurfum að vera róleg þegar kemur að Grænlandi og það er þess vegna sem ég segi að við getum verið róleg og yfirveguð en samt prinsippföst í afstöðunni til Grænlands. Því fagna ég því að nú sé Miðflokkurinn kominn hingað upp til þess að undirstrika eindregna samstöðu sína með Grænlandi, af því að ég hef verið gagnrýnd fyrir (Forseti hringir.) að að vera með ákveðnar yfirlýsingar og ég hef verið gagnrýnd fyrir (Forseti hringir.) að hlusta á það sem m.a. Bandaríkjaforseti hefur verið að segja gagnvart Grænlandi. Grænlendingar eru að taka þessu mjög alvarlega. Af hverju erum við Íslendingar ekki að gera það líka? (Gripið fram í: Ha? …)