157. löggjafarþing — 58. fundur,  22. jan. 2026.

Staða alþjóðamála, munnleg skýrsla utanríkisráðherra.

[12:14]
Horfa

Guðrún Hafsteinsdóttir (S) (um fundarstjórn):

Forseti. Mér fannst framganga hæstv. utanríkisráðherra ómakleg, ósmekkleg og ósvífin. Ég óskaði eftir því að ráðherra kæmi hér og bæði stjórnarandstöðuna afsökunar á þeim dylgjum sem hún fór fram með í máli sínu. Hver einasti þingmaður í þessum sal, hver einasti þingmaður í þingflokki Sjálfstæðisflokksins, styður Grænland í sinni baráttu. Þegar ráðherra kemur hér og vænir stjórnarandstöðuna um eitthvað annað þá er hún að setja okkur öll undir þær dylgjur. Þetta er ósmekklegt, þetta er ósvífið, þetta er ómaklegt. Svo fær ráðherra hér tækifæri, kemur hér upp til að taka til máls, til að biðjast afsökunar, en nei, heldur áfram að hræra í þessum potti þar sem hún er einhvern veginn að reyna að búa til gallsúran graut. Ég vænti þess að ráðherra sýni þá reisn að við séum sameinuð (Forseti hringir.) hér í þessum þingsal með Grænlendingum í þeirri baráttu sem Grænlendingar hafa staðið fyrir.