157. löggjafarþing — 58. fundur,  22. jan. 2026.

Staða alþjóðamála, munnleg skýrsla utanríkisráðherra.

[12:17]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M):

Herra forseti. Við ræðum alþjóðamál á áhugaverðum tímum. Þetta er nokkuð sem við höfum fengið að heyra núna ár eftir ár þegar alþjóðamálin eru rædd á Alþingi og má alveg til sanns vegar færa. En þetta eru hins vegar ekki fyrstu áhugaverðu tímarnir sem við höfum gengið í gegnum eða samfélagið eða önnur samfélög. Reglan er eiginlega frekar sú að tímar séu fremur áhugaverðir og hlutir gerist, jafnvel hlutir sem menn áttu ekki von á. Við þær aðstæður er mikilvægt að meta raunveruleikann. Það hefur verið veikleiki hjá stjórnvöldum víða, ekki hvað síst hér á Íslandi síðustu misseri, að menn vilja líta fram hjá raunveruleikanum og tala út frá einhverjum ímynduðum veruleika. En á áhugaverðum tímum þegar stórir hlutir eru að gerast er nauðsynlegt að nálgast út frá raunveruleikanum til að geta brugðist við á skynsamlegan og réttan hátt. Við verðum að vona við slíkar aðstæður að svalari hausar ráði för, svo vísað sé í amerískt orðatiltæki. Menn meti hlutina af yfirvegun og sýni þau viðbrögð sem eru líklegust til að skila árangri, bæta stöðuna.

Það var auðvitað mikið áfall fyrir okkur, ekki hvað síst hér í Evrópu, þegar Rússar gerðu innrás í Úkraínu. Það var nokkuð sem við áttum ekki von á og töldum, a.m.k. vonuðum, að það væri liðin tíð að í okkar heimshluta yrði gerð innrás í fullvalda ríki með hervaldi. En þó er ekkert sérstaklega langt frá því að síðast var stríð í Evrópu og þau hafa verið mörg og stór og voru raunar eiginlega reglan í gegnum tíðina. En það sem reyndist best við að koma í veg fyrir stríð, eftir aldalanga reynslu af misheppnuðum tilraunum til að koma á friði, var þjóðríkið. Garður er granna sættir. Þegar þjóðir fá að stjórna sér sjálfar innan sinna landamæra og geta á grundvelli þess átt gott samstarf við önnur lönd, samstarf um gagnkvæma hagsmuni, hefur það reynst besta tryggingin fyrir friði. Tilraunir til að draga úr þessu fyrirkomulagi og fullveldi þjóða, sjálfræði þeirra, eru hins vegar ekkert nýjar af nálinni heldur. Fyrri heimsstyrjöldin hófst vegna vandræða í austurrísk-ungverska keisaradæminu þar sem ólíkar þjóðir, sem þráðu að vera sjálfstæðar, voru settar saman í eitt ríki eða undir eitt yfirvald í Vínarborg og í Búdapest. Þetta gekk jafnt og þétt erfiðara og erfiðara eftir því sem árin og áratugirnir liðu. Þá var brugðist við með aukinni skriffinnsku og auknu valdi, með því að auka miðstýringarvaldið fremur en að líta á rót vandans. Júgóslavía síðar á síðustu öld er annað dæmi um þetta. Þess vegna verðum við að reyna að læra af mistökunum, læra af því sem vel hefur reynst og jafnframt að forðast mistökin til að komast hjá því að tímarnir verði alltaf áhugaverðir á óæskilegan hátt.

Nú hefur umræða um alþjóðamál færst enn nær okkur Íslendingum heldur en var þegar umræðan var sem mest um innrásina í Úkraínu, sem því miður sér enn ekki fyrir endann á. Allt í einu beindist athyglin að nágrönnum okkar í Grænlandi. Grænlendingar eru sannarlega vinaþjóð Íslendinga, ekki aðeins nágrannar. Ég hef fylgst með miklum áhuga þingmanna allra flokka í mörg ár, frá því að ég byrjaði á þingi, á Grænlandi. Menn hafa leitast við að sinna samskiptum við Grænland með ferðum þangað en einnig með því að koma á auknu samstarfi og hv. þm. Guðlaugur Þór Þórðarson á heiður skilinn fyrir skýrslu sína um Grænland, þar voru margar góðar tillögur sem mætti vel líta til núna og styðja þannig við Grænland. Þannig gerum við mest gagn gagnvart nágrönnum okkar og vinum, með því að treysta stoðir þeirra með auknum samskiptum á alla lund, viðskiptum, menningarsamstarfi, aðstoð á þeim sviðum þar sem kannski skortir innviði í Grænlandi og þannig mætti lengi telja. Við gögnumst ekki vinum okkar með því að reyna að troða okkur framarlega í hóp þeirra sem vinna að lausn mála og gera það með æsingi. Aðkoma Íslands verður að byggjast á styrkleikum okkar og stöðu, lipurleika sem lítillar þjóðar, friðelskandi þjóðar. Það má ekki snúast um athyglisþörf einstakra ráðherra eða hvað þá að vera snúið upp í tilraun til að ná einhverjum allt öðrum markmiðum eins og því markmiði að reyna nú eina ferðina enn að troða Íslandi inn í hið nýja Habsborgaraveldi, Evrópusambandið. Það er raunar með stökustu ólíkindum og ósvífið að þegar uppi eru mál sem tengjast næstu nágrönnum okkar, þá skuli jafnvel það vera gert að tilefni til að reyna að þvinga Íslendinga inn í Evrópusambandið á sama tíma og þetta samband er á fallanda fæti, er orðið hnignunarbandalag.

Þó að hinir ýmsu atburðir verði og sumir óvæntir og við leyfum okkur fyrir vikið að tala jafnvel um fordómalausa tíma, a.m.k. áhugaverða tíma, í alþjóðamálunum, þá líða þeir hjá og stundum jafnvel gleymast þeir. En það verða líka grundvallarbreytingar og nú eru að eiga sér stað grundvallarbreytingar í alþjóðakerfinu. Hver er stærsta grundvallarbreyting alþjóðakerfisins? Ef við lítum á heildarmyndina, ef við leyfum okkur að líta á stóru myndina, hver er stærsta grundvallarbreytingin á síðustu árum og áratugum? Evrópa er að veikjast. Evrópa er að veikjast jafnt og þétt á allan hátt. Það eykur hættuna á uppákomum. Það þýðir að þeir sem vilja nálgast hlutina af frekju leyfa sér í auknum mæli að líta fram hjá Evrópu, Evrópuríkjunum. Þeir bera ekki virðingu fyrir þessum löndum af því að þau, því miður, bera ekki næga virðingu fyrir sér sjálf. Iðnaði í Evrópu fer hnignandi. Efnahagslega fer Evrópu hnignandi, augljóslega hlutfallslega miðað við aðra heimshluta. Það er reynt að bæta fyrir þetta með auknu skrifræði og aukinni samþjöppun, rétt eins og í austurrísk-ungverska keisaradæminu á sínum tíma. Menn gefast ekki upp á að nota aðferðir sem ekki hafa virkað og eiga afskaplega erfitt með að læra af reynslunni, virðist vera.

Evrópulönd eru líka farin að vanrækja það sem gerði þau merk, skilaði þeim framförum og árangri og eru jafnvel farin að líta fram hjá grundvallarreglum réttarríkisins, reglum sem tók margar aldir og mikið blóð, svita og tár að ná fram. Það má nefna reglu eins og sakleysi uns sekt er sönnuð, eins og jafnvel málfrelsið, algjört grundvallaratriði í árangri vestrænna landa í gegnum tíðina, málfrelsið. Nú í þessum ógöngum sjá mörg Evrópulönd ástæðu til að vega að málfrelsi, telja sig þurfa að hemja það af því að stjórnvöld viti betur. Embættismannakerfið veit betur. Þetta veit ekki á gott. Það þýðir að aðrir bera minni virðingu fyrir Evrópulöndunum en ella og þau veikjast líka inn á við. Evrópulöndin þurfa að fara í grundvallarendurskoðun á þeirri leið sem þau hafa verið á og á þeim tímapunkti væri afleikur sem seint yrði aftur tekinn að ætla að koma Íslandi inn í það sökkvandi skip áður en við sjáum hvort því tekst að komast til lands eða ekki. Og að gera þetta núna samhliða því að segja okkur þingmönnum — og ég er ekki bara að vísa í hæstv. utanríkisráðherra, ég vísa líka í hæstv. forsætisráðherra og stjórnarmeirihlutann allan — samhliða því að lögð er áhersla á mikilvægi samstöðu Íslendinga við núverandi aðstæður, að ætla þá að steypa hér öllu í innbyrðis átök til þess eins að reyna með blekkingum að koma Íslendingum inn í Evrópusambandið. Það eru svik við þjóðina að treysta henni ekki, sagði hæstv. utanríkisráðherra hér áðan. Það kemur frá ráðherra í ríkisstjórn sem hefur svikið meira og minna öll þau fyrirheit sem hún gaf þjóðinni fyrir síðustu kosningar, m.a. og augljóslega í efnahagsmálum sem áttu nú að vera forgangsatriði stjórnarinnar og Evrópumálin að bíða á meðan af nauðsyn eins og hæstv. forsætisráðherra útskýrði. Nú er búið að svíkja það líka með tilkynningu á þessum tímapunkti, á þessum áhugaverða tíma í alþjóðamálum, frá hæstv. utanríkisráðherra og svo í framhaldinu hæstv. forsætisráðherra um að nú skuli aldeilis farið af stað með Evrópumálin. Á hvaða forsendum á þetta að gerast? Jú, með því að spyrja hvort fólk vilji halda áfram að tala við Evrópusambandið.

Það er búið að reyna að útskýra það fyrir íslenskum stjórnvöldum, ég fylgdist með því árum saman í tíð síðustu umsóknar, reynt að útskýra það af hálfu fulltrúa Evrópusambandsins að svona virkar ekki umsókn um aðild að Evrópusambandinu. Ekkert ríki sækir um aðild að ESB nema það sé almenn samstaða og eindreginn vilji til að ganga í sambandið. Þegar það er fyrir hendi er Evrópusambandið tilbúið til að leyfa viðkomandi ríki að útskýra með hvaða hætti það ætli að uppfylla kröfur Evrópusambandsins og laga sig að því. Sýni ríkið næga undirgefni — það var ekki orðalag þessa fólks en það er í raun merkingin — sýni umsóknarríkið næga undirgefni gagnvart Evrópusambandinu og leiðirnar til að gangast undir sambandið að fullu þá verði því hleypt inn. Hér erum við með ríkisstjórn sem treystir sér ekki til að segja sannleikann, treystir sér ekki til að nálgast málið út frá raunveruleikanum heldur leitast við, eftir að hafa svikið öll kosningaloforðin, að blekkja fólk í næsta skref og svo næsta þangað til menn vita ekki hvaðan á sig stendur veðrið og allt í einu eru þeir komnir inn í Evrópusambandið.

Á meðan hæstv. utanríkisráðherra og ríkisstjórnin annaðhvort skilja ekki eða vilja ekki ræða eðli Evrópusambandsaðildar og hvað hún felur í sér og hvað umsókn felur í sér, þá er verið að beita blekkingum sem eru til þess fallnar að valda ólgu í íslensku samfélagi og gera stjórnvöldum verr kleift að rækja önnur hlutverk sín.

Það er margt sem hefði verið tilefni til að ræða í þróun alþjóðamála en í ljósi þess að hæstv. utanríkisráðherra taldi rétt að sú umræða snerist fyrst og fremst um Evrópusambandið, enda eru alþjóðamál Evrópusambandið að mati Viðreisnar, þá var ekki hægt annað en að bregðast við því. En jafnvel maðurinn sem setti af stað síðustu Evrópusambandsumsókn og leiddi hana, maðurinn sem lokaði nokkrum köflum eins og það var kallað, köflum sem núverandi hæstv. ríkisstjórn vill halda áfram að bæta við, jafnvel sá maður, Össur Skarphéðinsson, telur nú að Viðreisn sé komin langleiðina með að klúðra framtíðaraðild að Evrópusambandinu með framgöngu sinni.

Ég held því að niðurstaða þessarar umræðu um alþjóðamál sé kannski fyrst og fremst sú að Viðreisn, sem álítur sig alþjóðasinnaðan flokk og aðra ekki, ætti að fara að huga að því hvernig hún nálgast alþjóðamálin og jafnvel hvernig hún nálgast stjórnmálin almennt.