157. löggjafarþing — 58. fundur,  22. jan. 2026.

Staða alþjóðamála, munnleg skýrsla utanríkisráðherra.

[12:33]
Horfa

utanríkisráðherra (Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir) (V) (andsvar):

Virðulegi forseti. Mín spurning til hv. formanns Miðflokksins er hvort hann hafi hlustað á ræðu Mark Carney, forsætisráðherra Kanada, í Davos og hvort hann sé sammála þeim áherslum sem Carney setur fram í þeirri mjög merkilegu ræðu? Að mínu mati eru ákveðin tímamót sem koma þar fram. Mér þætti forvitnilegt að fá að heyra frá formanni Miðflokksins hans afstöðu til ræðu Carneys. Mér fannst líka pínu miður að upplifa það, eins og hv. þingmaður sagði, að þjóðin viti ekki hvaðan á sig stendur veðrið. Mér finnst vera talað niður til þjóðarinnar með ákveðnum hætti; að það sé ekki hægt að treysta þjóðinni til að meta það þegar niðurstaða liggur fyrir, eftir samningaviðræður við Evrópusambandið, að við treystum henni til þess að taka þau skref og meta síðan, ef hún segir já, hvernig slíkur samningur passar inn í þá heimsmynd sem við stöndum fyrir. Getur verið að sá samningur sé til þess að ýta undir efnahagslegt öryggi, til að mynda með því að treysta öryggi krónunnar, að það sé meiri stöðugleiki fyrir íslensk heimili og lítil og meðalstór fyrirtæki? Ég tala nú ekki um stóru fyrirtækin en reyndar eru þau mestmegnis fyrir utan okkar gjaldmiðil. Getur verið að Evrópusambandið, eins og Danir hafa sagt núna út af öllu þessu með Grænland, hafi verið gríðarlega mikilvægur bakhjarl í því að ræða fullveldi Grænlands og treysta einmitt á fullveldisrétt Grænlendinga og leið Dana? Þannig að mér fannst þetta pínulítið miður.

Ég vildi hins vegar koma hingað upp og spyrja um afstöðu til ræðu Carneys og síðan vildi ég bara undirstrika að við höfum verið allt síðasta ár í mjög góðu samstarfi og samtali við Grænland um næstu skref til að þétta raðirnar. Við vitum að grænlensk stjórnsýsla hefur ekki mikinn mannafla og þau voru áður en við komum (Forseti hringir.) m.a. í fríverslunarviðræðum við Bretland. Ég vil þó draga fram að við höfum núna á síðustu mánuðum sérstaklega farið í það að reyna að flýta því til að mynda að gera viðskiptasamninga milli Grænlands og Íslands. (Forseti hringir.) Við viljum helst og höfum dregið fram að það væri ákjósanlegt ef það væri eitthvað í formi Hoyvík; að við gætum séð Grænland, Færeyjar og Ísland vinna saman á þessu sviði.