Staða alþjóðamála, munnleg skýrsla utanríkisráðherra.
Herra forseti. Nei, ég heyrði ekki ræðu Marks Carneys en ég heyrði ræðu hæstv. utanríkisráðherra. Hér er ég að bregðast við henni en ekki ræðu kanadíska forsætisráðherrans.
Hæstv. ráðherra spyr hvort við treystum ekki þjóðinni. Þetta er reyndar orðið svolítið þreytt nálgun því þessi ríkisstjórn treystir ekki þjóðinni. Hún treystir ekki þjóðinni til að meta það hvað er að ganga í Evrópusambandið. Hún treystir sér ekki til að spyrja þjóðina hvort hún vilji ganga í Evrópusambandið heldur spyr hún hvort menn vilji halda áfram með umsókn sem er ekki til. Ísland er ekki umsóknarríki að Evrópusambandinu. Ríkisstjórnin treystir ekki þjóðinni og ég treysti ekki þessari ríkisstjórn til að halda utan um þessi mál. Það get ég fullyrt, ég treysti ekki ríkisstjórninni til að halda utan um málin enda hefur nálgunin fram að þessu byggst á blekkingum.
Ég spyr til að mynda á móti: Treystir hæstv. utanríkisráðherra ekki þjóðinni til að sjá varnarsamninginn sem til stóð að undirrita við Evrópusambandið? Honum var frestað. Hvers vegna var það? Jú, vegna þess að Evrópusambandið ákvað að brjóta EES-samninginn með því að leggja refsitolla á Íslendinga. Hvers vegna má þjóðin ekki sjá þennan samning og taka afstöðu til hans áður en hæstv. utanríkisráðherra undirritar hann?
Hvað varðar spurninguna um hvort ekki gæti komið eitthvað út úr viðræðunum sem sýndi að þetta gæti verið okkur hagfellt, við gætum grætt á því að ganga í Evrópusambandið, jafnvel sparað peninga, þá er svarið hið sama og kom fram í ræðu minni hér áðan. Það liggur alveg fyrir hvað felst í því að ganga í Evrópusambandið. Það eru til 27 dæmi um það þannig að það ætti að vera hægur leikur fyrir hæstv. ráðherra að skoða það og hver áhrifin af því hafa verið fyrir þau lönd í samanburði við árangur Íslands, Noregs og Sviss.Hvað varðar samstarf Íslands, Grænlands og Færeyja er ég eindregið hlynntur því.