Staða alþjóðamála, munnleg skýrsla utanríkisráðherra.
Virðulegi forseti. Ástæðan fyrir því að ég spurði hv. þingmann m.a. um ræðu Marks Carneys, sem er mjög merkileg og hann er manneskja sem þorir að horfa og segja að heimsmyndin sé breytt og að lítil og meðalstór ríki þurfi að haga sér og bregðast við í samræmi við það, er að öll ræða hv. formanns Miðflokksins var eins og hún væri byggð á talpunktum frá Hvíta húsinu, að nýja þjóðaröryggisstefna Bandaríkjanna hefði einhvern veginn farið inn í alla talpunkta hv. þm. Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar. Ég hélt að hann hefði lesið sér til á fleiri vígstöðvum en bara því sem kemur frá Hvíta húsinu. En gott og vel. En sama mantra var samt kyrjuð þarna: Evrópa er að fara niður. Þetta var nákvæmlega sama orðræða og var hjá varaforseta Bandaríkjanna á öryggisráðstefnunni í München fyrir ári síðan.
Þegar við horfum á söguna og Eystrasaltsríkin og við horfum til að mynda á Austur-Evrópu, hvernig ákváðu þau að beita þessu kærkomna fullveldi sem þau fengu eftir fall kommúnismans? Þau ákváðu að beita fullveldinu og styrkja það með því að sækja um aðild að Atlantshafsbandalaginu og Evrópusambandinu. Þannig ákváðu þau á ákveðnum erfiðum tímum að styrkja sig og sitt fullveldi og nýta þann rétt sem þau höfðu og þorðu að gera það og treysta sinni þjóð. Við skulum ekki gleyma því að þegar hér er verið að koma og segja að það megi ekki kljúfa þjóðina þá er það ekki bara einn partur þjóðarinnar sem fær að ráða allri þessari umræðu. Sá hópur sem hv. þingmaður vill alls ekki að fái að kjósa um Evrópusambandið er stór partur af íslenskri þjóð sem vill fá að vita meira, sem vill fá að vita staðreyndir, sem vill fá þetta tækifæri sem við erum að ræða. Það er ekki bara þannig að með því að setja pottlokið ofan á þann hluta þjóðarinnar sem vill vita meira þá sé bara allt í gúddí og allir bara í samstöðu. Það er ekki þannig sem þetta virkar. Þess vegna erum við með þjóðaratkvæðagreiðslu af því að við viljum að þjóðin kveði úr um það (Forseti hringir.) hvort við eigum ekki að halda áfram aðildarviðræðum og hvað kemur síðan út úr því. Hættulegra er það nú ekki (Forseti hringir.) og ég hvet hv. þingmenn til þess að treysta þjóðinni sinni.