157. löggjafarþing — 58. fundur,  22. jan. 2026.

Staða alþjóðamála, munnleg skýrsla utanríkisráðherra.

[12:40]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M) (andsvar):

Herra forseti. Einu sinni sem oftar var lítið um rök en hjakkað í sama farinu, sama frasanum sem svar við öllu. Ég var ekki að taka neitt sérstaklega upp úr ræðu varaforseta Bandaríkjanna. Hann benti hins vegar Evrópumönnum á eitt og annað sem þeir hefðu kannski bara gott af því að velta fyrir sér. Það var ekki gert í neinum illindum, það var gert af væntumþykju fyrir Evrópu, upprunalandi Bandaríkjanna að miklu leyti og vestrænnar siðmenningar. Ég vísaði líka alveg sérstaklega í sögu Evrópu og ég vísaði líka í Draghi-skýrsluna ef út í það er farið, sem skrifuð var fyrir Evrópusambandið til þess að útskýra fyrir embættismönnum þar að þeir væru lentir í tómum vandræðum og þyrftu að bregðast við. En í kerfisræðinu hefur hins vegar lítið um raunveruleg viðbrögð. Það er haldið áfram á sömu braut, áfram sendir út pakkar sem eru til þess fallnir að draga úr samkeppnishæfni Evrópu og veikja hana.

Já, ég gleymdi að nefna að það er auðvitað með stökustu ólíkindum að Evrópuþráhyggja þessarar ríkisstjórnar sé slík að nú standi til að innleiða hælisleitendapakka Evrópusambandsins, sem er fullkomlega galið mál en við munum ræða það betur síðar. Svo þetta endalausa tal um að einhverjir gætu viljað vita meira. Það liggur allt fyrir. Það er það sem bæði ég og allir fulltrúar Evrópusambandsins sem hafa komið hingað til að ræða umsóknina höfum reynt að útskýra. Það liggur fyrir hvernig Evrópusambandið er og það er vel hægt að kynna sér það. Ef einhver kæmi hér upp og segði: Ja, það eru margir sem vilja kannski helst ganga úr NATO, er þá ekki bara eðlilegt að þeir fái að kjósa um það? Að þeir kynni sér hverjar afleiðingarnar af því yrðu? Af hverju ekki? Treystir hæstv. utanríkisráðherra ekki þjóðinni til að meta það hvort hún eigi að vera í NATO eða ekki?