157. löggjafarþing — 58. fundur,  22. jan. 2026.

Staða alþjóðamála, munnleg skýrsla utanríkisráðherra.

[12:44]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M) (andsvar):

Herra forseti. Hæstv. utanríkisráðherra vill ræða við mig um ræðu Marks Carneys og hv. þm. Pawel Bartoszek vill ræða við mig um Ólaf Ragnar Grímsson. Ég skal reyna að túlka orð fyrrverandi forseta eftir besta minni. Ég tel að forsetinn fyrrverandi sé mikill stuðningsmaður Grænlands og samskipta Íslands og Grænlands enda hefur hann helgað sig norðurslóðamálum, og þar með talið Grænlandi, frá því skömmu eftir að og raunar á meðan hann var forseti líka og ekki ástæða til að efast um að hann, eins og þingmenn hér, vilji veg Grænlands sem mestan og bestan.

Hvað hina spurninguna varðar, um það hvort ég telji að íslensk stjórnvöld hafi gengið of hart fram í Grænlandsmálunum, þá voru athugasemdir mínar um nálgun stjórnvalda að þessu máli til komnar í framhaldi af yfirlýsingum hæstv. utanríkisráðherra í ræðu sinni hérna áðan, sem gaf til kynna að það að menn skuli hafa haft orð á því að rétt væri að anda með nefinu eða sýna yfirvegun í nálgun sinni á þetta mál að þá væru þeir ekki stuðningsmenn Grænlands. Ég var einfaldlega að benda á að það hefði ekki verið betur til þess fallið að styrkja stöðu Grænlands ef hæstv. utanríkisráðherra og eftir atvikum hæstv. forsætisráðherra hefðu í enn meira mæli reynt að gera sig að einhverjum aðalleikurunum í þessu og gert það með því að ganga hart fram í yfirlýsingum, hótunum eða svívirðingum. Þess vegna þótti mér rétt að hafa orð á þessu, fyrst hæstv. utanríkisráðherra stillti þessu svona upp.