157. löggjafarþing — 58. fundur,  22. jan. 2026.

Staða alþjóðamála, munnleg skýrsla utanríkisráðherra.

[12:49]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M) (andsvar):

Frú forseti. Annaðhvort er mikill misskilningur í gangi hjá hæstv. ráðherrum og hv. þingmönnum Viðreisnar eða þá að þeir eru að keppast við það þessa dagana að reyna að búa sér til óvini í málum þar sem engir óvinir eru. Nú vill hv. þm. Pawel Bartoszek að ég fari að svara fyrir og verja þjóðaröryggisstefnu Bandaríkjanna. Ég hafði bara ekkert með hana að gera; get eflaust tekið undir eitthvað af því sem þar kemur fram og verið algjörlega andvígur öðru. Ég er til að mynda ekki hrifinn af þessum tollamálum. Og af því að hæstv. utanríkisráðherra hjó í sama knérunn hér áðan og vildi meina að ég hefði tekið eitthvað upp úr ræðu varaforseta Bandaríkjanna, J. D. Vance, í München í fyrra, þá finnst mér nú að hæstv. ráðherra og hv. þm. Pawel Bartoszek mættu muna lengra aftur. Það sem ég vísaði í, og kann að hafa átt sér einhvern samhljóm í ræðu bandaríska varaforsetans, eru hlutir sem ég hef verið að segja hér í mörg ár, löngu áður en nokkur vissi hver J. D. Vance yfirhöfuð væri. Ef menn ætla að gagnrýna eitthvað þá mega þeir gagnrýna mig fyrir að hafa sagt það frekar en að reyna að halda því fram að ég sé að taka það upp eftir einhverjum öðrum sem sagði það löngu á eftir mér.