157. löggjafarþing — 58. fundur,  22. jan. 2026.

Staða alþjóðamála, munnleg skýrsla utanríkisráðherra.

[13:08]
Horfa

Sigurður Ingi Jóhannsson (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég held að það sé rétt að hluti af andúð núverandi stjórnvalda í Bandaríkjunum eða þeirra sem aðhyllast þau, stóru tæknifyrirtækjanna út í Evrópusambandið sé vegna þess að þau vilji auðvitað ná sínu fram. Það er hins vegar ekki bara Evrópusambandið sem sýnir viðspyrnu. Ég ætla bara að benda á að það er Ástralía sem hefur gengið þar fremst í flokki. Hún er ekki í Evrópusambandinu. Ástralir hafa bara sett sína löggjöf og það hafa einstök lönd gert líka. Það er mikilvægt að í samtali og samstarfi við sem flest lönd náum við þessari skipan.

Það var það sem mér fannst líka áhugavert í ræðu forsætisráðherra Kanada, ef við förum í þessa samlíkingu um að taka skiltið úr glugganum, sem snerist reyndar upphaflega um afstöðuna til kommúnismans, að hún getur líka snúist um afstöðu til þess að þessir ofurríku einstaklingar sem stjórna stærstu fyrirtækjum heimsins geti ekki komist upp með að gera það sem þeir eru að gera. Heimurinn þolir það einfaldlega ekki. Það er ekki jafnræði í heiminum ef slíkir aðilar geta haldið áfram á þeirri braut sem þeir hafa verið á nú upp á síðkastið. Þessari samstöðu getum við alveg náð með því að taka skiltið úr glugganum, bara öll farið að tala skýrt í þessa átt. Það þarf ekki Evrópusambandið til. Evrópusambandið mun heldur ekki tala einni röddu fyrr en tillögur Draghi verða að veruleika. Þá erum við ekki lengur með Evrópusamband, Evrópubandalag, heldur erum við með bandaríki Evrópu. Það var hans tillaga. Höfum við áhuga á að fara þangað? Höfum við áhuga á að verða 51. fylki Bandaríkjanna? (Forseti hringir.) Nei. Höfum við áhuga á að verða 28. fylki Evrópu? Nei, held ég. Ég held að við Íslendingar viljum bara vera áfram við Íslendingar.