157. löggjafarþing — 58. fundur,  22. jan. 2026.

Staða alþjóðamála, munnleg skýrsla utanríkisráðherra.

[13:10]
Horfa

utanríkisráðherra (Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir) (V) (andsvar):

Virðulegi forseti. Það er einmitt mikilvægt að við höldum áfram samtalinu og samstarfinu við öll lönd. Þess vegna fannst mér líka einkennilegt og ankannalegt í sumar þegar forystumaður Evrópusambandsins, Ursula von der Leyen, var hér — forystumaður fyrir sambandi sem tekur á móti 70% af útflutningi okkar Íslendinga og er í miklu og góðu samstarfi á breiðum grunni við Ísland, og það skiptir máli að við höfum gott samband þar á milli — þá fannst mér a.m.k. ákveðinn partur stjórnarandstöðunnar bregðast við með mjög einkennilegum hætti. Við eigum einmitt, eins og hv. þingmaður segir, að vera í samtali við sem flesta, hvort sem það er við Evrópusambandið, við Bretland og Noreg eins og við erum að gera eða við Kanada eða önnur líkt þenkjandi lönd sem eru sem betur fer að koma í ríkara mæli inn á fundi NATO, til að mynda gestaþjóðir eins og Ástralía, Nýja-Sjáland, Suður-Kórea og Japan. Allt er þetta mikilvægt. Þótt við þjóðirnar sem stöndum vörð um þau gildi sem við Íslendingar höfum staðið vörð um séum allt of fáar, þá er mikilvægt að við reynum að gera sem mest saman.

Varðandi stóru, ofurríku þjóðirnar er ég hins vegar svo sammála hv. þingmanni, það verður að koma böndum á þetta með einum eða öðrum hætti, hvernig þær vinna oft gegn neytendum og samkeppnishæfni þjóða. Mér finnst ekki síður gott til að mynda að í gegnum Evrópusambandið og ákveðna löggjöf er þó verið að reyna að slá ákveðna skjaldborg um litlu og meðalstóru fyrirtækin. Litlu og meðalstóru fyrirtækin eru það sem drífur Ísland áfram. Hér heima sjá þau ákveðna möguleika og ég tel til að mynda, talandi um neytendavernd, að við Íslendingar njótum góðs af þessum reikisamningum sem við þekkjum til og Evrópusambandið skyldaði evrópsk og alþjóðleg símafyrirtæki til að fara undir. Við höfum gert um 35 fríverslunarsamninga en við höfum bara gert tvo ein. Við njótum okkar betur og fáum fleiri samtöl (Forseti hringir.) og aukið samstarf í gegnum samtal og samvinnu við aðra, í gegnum EFTA og alls konar fjölþjóðasamstarf. Þess vegna segi ég líka að við megum ekki vera hrædd um að detta í einhverjar skotgrafir þegar við drögum fram á þessum tíma (Forseti hringir.) kosti og galla þess að vera í Evrópusambandinu og leyfum þjóðinni að njóta.