157. löggjafarþing — 58. fundur,  22. jan. 2026.

Staða alþjóðamála, munnleg skýrsla utanríkisráðherra.

[13:13]
Horfa

Sigurður Ingi Jóhannsson (F) (andsvar):

Frú forseti. Það er rétt, ég ætla að taka undir með hæstv. ráðherra, að við getum verið í samtali og samstarfi og samvinnu við sem flest ríki en við erum fullkomlega ósammála um það að það sé skynsamlegt fyrir Ísland, og við í Framsókn teljum það fullkomlega óskiljanlegt, að stefna að því að verða eitt af fylkjum Evrópu. Okkur finnst það bara. Ég held að Íslendingar muni ekki njóta þess að vera í Evrópusambandinu. Ef við förum að tala um rökin sem þar eru þá vitum við öll að atvinnuleysi er þar mun meira heldur en hér á Íslandi, hagvöxtur er minni og nýsköpun er minni. Krafturinn í Evrópuríkjunum er minni vegna þess að þau eru ekki búin að ná því að verða eitt og hið sama; regluverkið er allt of þungt. Við njótum góðs af því að vera með EES-samninginn. Við njótum góðs af því að vera EFTA-ríki. Við njótum góðs af því að hafa í langan tíma stefnt að því að gera fríverslunarsamninga við sem flest ríki. Við eigum bara að halda áfram á þeirri braut. Okkur hefur vegnað vel þar og við eigum ekki að fara að binda trúss okkar við eitt viðskiptaveldi frekar en annað á þeim tímum sem nú eru í gangi. Það er engin ástæða til þess og það hefur ekkert með varnar- og öryggismálin að gera. Ekkert. En samstarf, samvinna og samtal hjálpar ávallt.