157. löggjafarþing — 58. fundur,  22. jan. 2026.

Staða alþjóðamála, munnleg skýrsla utanríkisráðherra.

[13:31]
Horfa

utanríkisráðherra (Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir) (V) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég er sammála því sem hefur komið fram, við þurfum að rækta samskipti vestur yfir haf sem og við Evrópu og önnur lönd. Það hafa verið, og ég vil undirstrika það, sama hvaða bábilja er oft sett fram af hálfu þingmanna stjórnarandstöðunnar, gríðarlega góð samskipti núna við Bandaríkin á sviði varnar- og öryggismála, mjög góð samskipti, og hafa ef eitthvað er bara stóreflst. Það sama gildir um viðskiptahliðina. Það eru engu að síður mikil vonbrigði, og mér finnst það náttúrlega sérstakt að í ræðu hv. þingmanns hafi það ekki verið fordæmt með meira afgerandi hætti, að vinaþjóð til 80 ára, og viðskiptahallinn hefur iðulega legið Íslands megin í allri þeirri sögu — að vonbrigðum skuli ekki hafa verið lýst yfir með að þessir tollar skuli hafa verið lagðir á. Þrátt fyrir mikil samtöl og samráð var þetta einhliða ákvörðun eins og hefur gerst gagnvart öllum öðrum þjóðum sem standa frammi fyrir þessu. En samtalið er ekki búið. Við höldum áfram og bara núna, eins og ég gat um, var ráðuneytisstjóri utanríkisráðuneytisins að koma heim úr mjög góðu embættismannasamtali, líka við þingmenn og fleiri úr báðum flokkum, sem skiptir okkur miklu máli. Ef allt gengur eftir vonast ég til að verða í Bandaríkjunum vegna þessara mála nú í upphafi febrúarmánaðar. Það á eftir að koma í ljós. Ég er sammála því að við eigum að passa vel upp á EES-samninginn. Þess vegna er mín spurning til hv. þingmanns: Er ekki alveg öruggt að hv. þingmaður mun til að mynda styðja bókun 35 þegar hún verður rædd hér, öll þau samskipti sem verða til þess að ýta undir og sýna fram á að okkur er alvara þegar við ræðum EES-samninginn? Er það ekki alveg á hreinu af því að þetta er hluti af því að við byggjum áfram utan um EES-samninginn? Ég hefði einmitt líka viljað fá hvatningu af því að svona miklar samþykktir og innleiðingar (Forseti hringir.) sem voru m.a. núna í upphafi desembermánaðar — það hefur ekki lengi gerst í sögu og samskiptum Íslands og EFTA, EES-ríkjanna, eins og gerðist nú undir lok síðasta árs. (Forseti hringir.) Allt bendir til þess að við séum á fullu að verja EES-samninginn og ég vona að hv. þingmaður, þrátt fyrir skiptar skoðanir á Evrópusambandinu (Forseti hringir.), deili því með mér. Ég vil hvetja hana áfram til að beita sér í sínum flokki fyrir því að þetta verði samþykkt og að við fáum hér hraða (Forseti hringir.) afgreiðslu sem fari ekki í Miðflokksgírinn þegar kemur að bókuninni.