Staða alþjóðamála, munnleg skýrsla utanríkisráðherra.
Virðulegi forseti. Mikil og góð samskipti og öflug hagsmunagæsla leiddu til þess að við fengum mjög ásættanlega niðurstöðu. Þrátt fyrir að vera fyrir utan verndarráðstafanir Evrópusambandsins náðum við að slá skjaldborg utan um hagsmuni íslenska fyrirtækisins sem um ræðir. Um þetta eru allir sammála, ef Sjálfstæðisflokkurinn er þá enn með einhver samskipti við atvinnulífið. Það gerðist en hins vegar dregur það mál fram þá stöðu fyrst …
Virðulegur forseti. Hér er eitthvert samtal út í — það er greinilega …
(Forseti (KÁB): Þá vil ég biðja þingmenn um að …)
eitthvað sem truflar hv. þingmenn að maður sé að ræða hér … (Gripið fram í.)
(Forseti (KÁB): Augnablik. Má forseti aðeins grípa inn í hér og óska eftir því að hér séu ekki samtöl í sal. Það er truflandi fyrir þann sem er að halda ræðu í pontu. Gjörðu svo vel.)
Virðulegi forseti. Sannleikanum verður hver sárreiðastur. En það breytir ekki því að við stöndum frammi fyrir nákvæmlega þessum veruleika; Ísland getur lent á milli skips og bryggju í þeirri mynd sem er að teiknast upp á sviði varnar- og öryggismála en ekki síst á sviði viðskipta. Við þurfum að sinna hagsmunagæslunni. Það gerðum við svo sannarlega þegar verndarráðstafanir voru yfirvofandi (Forseti hringir.) og vorum í miklu samstarfi og samtali við atvinnulífið.
Ég vil hins vegar spyrja hv. þingmann hvort hún sé ekki sammála því að það komi ekkert, eins og staðan er núna, (Forseti hringir.) í staðinn fyrir NATO. Við stöndum vörð um NATO og það er mjög mikilvægt, ekki síst þegar við sjáum stöðuna núna varðandi Grænland og ýmis önnur verkefni. En er hv. þingmaður ekki sammála mér í því að við eigum að efla (Forseti hringir.) tvíhliða samskipti við önnur ríki eins og við höfum verið að gera við Þýskaland og Finnland og fleiri þjóðir? (Forseti hringir.) Eða snýst þetta um það að það megi aldrei tala við Evrópusambandið? Ég tel mjög mikilvægt að við klárum öryggis- og varnaryfirlýsinguna sem hefur verið í pípunum til að treysta enn frekar stoðir okkar í varnar- og öryggismálum.
(Forseti (KÁB): Forseti vill minna á að í síðari umferð í þessum andsvörum er aðeins ein mínúta. Ég bið hv. þingmenn um að virða þann tíma.)