157. löggjafarþing — 58. fundur,  22. jan. 2026.

Staða alþjóðamála, munnleg skýrsla utanríkisráðherra.

[13:52]
Horfa

Pawel Bartoszek (V) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka þessar skýringar. Mér finnst hnignunarbandalag orðalag sem felur í sér ákveðna óvirðingu en það er bara þannig. Mig langar að spyrja í síðara andsvari mínu um þá fullyrðingu sem hún dregur hér upp varðandi EES-samninginn, að með þeirri vegferð að vilja stíga skref inn í Evrópusambandið þá viljum við ganga úr EES-samstarfinu. Er það ekki þannig að EES-samstarfið er annars vegar samstarf Evrópusambandsins, þeirra ríkja sem þar eru, og síðan EES/EFTA-ríkjanna? Í dag erum við EES/EFTA-ríki. Verðum við hluti af Evrópusambandinu þá verðum við einfaldlega hinum megin við það borð. Við verðum áfram hluti af EES-samstarfinu, við verðum bara inni í Evrópusambandinu eins og öll ESB-ríkin eru. Þannig að ég skil ekki hvert þingmaðurinn er að fara. Við verðum hluti af EES-samstarfinu verandi inni í Evrópusambandinu, ekki nema menn hafi áhyggjur af því að þær þjóðir sem eftir sitja, Noregur og Liechtenstein, lendi í einhverjum vandræðum. Það kann að vera að það þurfi eitthvað að endurskoða það regluverk (Forseti hringir.) en ég sé ekki að það sé eitthvað sem Íslendingar þurfi að hafa áhyggjur af.