157. löggjafarþing — 58. fundur,  22. jan. 2026.

Staða alþjóðamála, munnleg skýrsla utanríkisráðherra.

[13:54]
Horfa

Dagbjört Hákonardóttir (Sf):

Frú forseti. Þegar hér urðu stjórnarslit haustið 2024 hafði ýmislegt gengið á í stjórnmálunum hér á Íslandi og ég ætla ekki að rekja það. Við vorum flest hér inni viðstödd og óróleiki, tortryggni og þreyta þeirra sem héldu þá um völdin var allsráðandi en það var líka kominn upp verulegur óstöðugleiki á alþjóðasviðinu. Sá óstöðugleiki hefur bara aukist. Ólöglegt innrásarstríð Rússa í Úkraínu hefur ekki aðeins valdið ólýsanlegum mannlegum hörmungum heldur líka um nokkurra ára skeið innfluttri verðbólgu sem við höfum fundið beint fyrir hér heima, áhrifum sem hafa skilað sér í breyttum kostnaðaráætlunum og forsendunum á bak við þær, við opinberar framkvæmdir og meira að segja í að byggja hér upp leikskóla. Þetta á við um allt landið. Alþjóðamálin standa okkur miklu nær en við viljum halda og þorum að viðurkenna, jafnvel þegar reynt er að tala um þau sem eitthvað fjarlægt. Við vitum líka að átökin á Gaza hafa sömuleiðis valdið straumhvörfum í því hvernig við tölum um alþjóðamál hér á landi. Það hefur áhrif á umræðuna og andrúmsloftið og hreinlega tiltrú almennings á alþjóðakerfinu. Við búum ekki við þann lúxus að líta á styrjaldir sem eitthvað sem gerist bara úti í heimi. Við búum nefnilega í þessum heimi og almenningur gerir þá kröfu að Ísland beiti sér af hörku, fólk á að gera þá kröfu. En til þess að það geti orðið að veruleika þurfum við borð til að sitja við, mörg borð á mörgum mismunandi vettvöngum.

Fyrrverandi forsætisráðherra Svía og einn fremsti jafnaðarmaður Norðurlanda, Olof Palme, sagði á sínum tíma að utanríkisstefna smáríkja væri ekki trúverðug nema hún byggðist á siðferðislegri festu, ekki bara herstyrk og eiginlega bara alls ekki herstyrk. Hann hafnaði algerlega hugmyndinni um að smáríki ættu að þegja til að vera örugg. Þvert á móti væri það skylda þeirra að tala skýrt vegna þess að þau hefðu minna að vinna en miklu meira að vernda. Þetta sagði hann í skugga kjarnorkuógnar sem þá vofði yfir heiminum öllum sem var ekki síður ógnvænleg staða en nú er uppi þegar allt er á hvolfi og spilin eru öll upp í loft. Þess vegna á þetta enn þá við.

Þegar boðað var síðast til þingkosninga þá vissum við ekki hver niðurstaðan yrði um það hver héldi um völd í Hvíta húsinu. Þessi staða hefur skipt miklu máli fyrir alþjóðakerfið og hefur ekki síst haft áhrif á fólk sem hefur aldrei stigið fæti í Bandaríkjunum, mun aldrei gera og líður fyrir það hvernig ný stjórn forgangsraðar. Við Íslendingar kusum ekki um alþjóðamál, það er staðreynd. Það höfum við alla jafna ekki gert. Við kusum um það sem við töldum okkur geta stjórnað; um ríkisfjármálin og verðbólguna, orkuna og heilbrigðismálin. Það er ekkert óeðlilegt við það. En við ræddum vissulega um Evrópusambandið. Þessi ríkisstjórn fékk skýrt umboð frá þjóðinni um að hún skyldi fá að ráða för. Þessi ríkisstjórn ætlar ekki að taka ákvarðanir um í hvora áttina er stefnt. Það er þjóðin sem á að fá að ákveða það. Þegar hér er talað um að það sé verið að kljúfa þjóðina langar mig til að færa ykkur fréttir, sem eru engar fréttir fyrir ykkur: Þjóðin er að tala um þessi mál. Þjóðin þarf að fá að vita í hvora áttina á að stefna, hvort Íslendingar vilji verja tíma og fjármunum í markvissa íslenska hagsmunagæslu á alþjóðavettvangi, hvort sem það er innan EES-samningsins, fyrir utan fundarherbergin, eða reyna að komast að farsælli lendingu í nýjum aðildarsamningi sem verði síðan borinn undir þjóðina. Það var kosið um þetta. Það er til fólk sem vill ekki að það verði kosið um þetta.

Forseti. Ég minnist hér á forgangsröðun í alþjóðamálum hvað varðar framlög til þeirra sem eiga um sárt að binda um allan heim. Þetta er þróunarsamvinnan, málaflokkur sem við eigum að rækta áfram. Við stöndum frammi fyrir ógnvænlegum niðurskurði framlaga stærstu aðilanna, þ.e. þeirra sem hafa lagt mest af mörkum til þessa málaflokks á heimsvísu. Þetta mun valda hungursneyðum og það er meðvituð ákvörðun. Við verðum að gefa í. Það hefur sjaldan, ef aldrei nokkurn tímann, verið mikilvægara fyrir Ísland að standa með þessum málaflokki og styðja við alþjóðakerfið og viðra óvinsælar skoðanir um að það sé nauðsynlegt að styðja við minnihlutahópa, verkefni sem lúta að jafnrétti kynjanna og þeirra sem höllum fæti standa á alþjóðasviðinu, bera virðingu fyrir alþjóðlegum mannúðarlögum og mannréttindum. Þetta er ekki vinsælt en Ísland hefur sem betur fer valið að taka afstöðu með þessum málaflokkum og standa við sitt. En auðvitað er það bara dropi í hafsjóinn.

Hérna ætla ég sérstaklega að nefna mikilvægi þess að við höldum áfram að styðja duglega við ályktun öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna nr. 1325, um konur, frið og öryggi. Konur eiga ekki bara að vera til skrauts í samningaviðræðum. Það er staðreynd, og það sýna gögn sem studd eru ítarlegum rannsóknum, að þegar konur koma að friðarviðræðum þá helst friður lengur og samfélög sem leiða af slíkum friðarviðræðum verða stöðugri, þ.e. friðurinn helst lengur. Þetta er staðreynd. Þetta eiga að vera áfram okkar áherslumál í öryggis- og varnarmálum, áherslur sem verða að endurspeglast í mönnun í utanríkisþjónustunni þar sem við á, t.d. á vettvangi NATO. Ég geri hreinlega ákall um að við hljómum eins og biluð plata þegar þessi málaflokkur er uppi.

Ég ætla líka að ræða mikilvægi þess að við leggjum áherslu á norrænt samstarf í öryggis- og varnarmálum og sérstaklega vil ég nefna NORDEFCO, vettvang norrænna þjóða til að eiga sameiginlegt samstarf, sem á rætur að rekja sína til þess áður en Finnar og Svíar gengu til liðs við NATO og vænti ég þess að við eigum enn frekari tækifæri til að þétta það samstarf. Þetta er ekki hugtak eða samstarf sem almenningur kannast við en hérna erum við að ræða mikilvæga samhæfingu, viðbúnað og viðnámsþrótt. Við þurfum að ræða netöryggi, vernd innviða, borgaralegan viðbúnað, leit og björgun. Norðurlöndin eru í lykilstöðu til þess að samhæfa sig með öflugum hætti. Fyrrverandi framkvæmdastjóri NATO og núverandi fjármálaráðherra Noregs, Jens Stoltenberg, hefur ítrekað bent á að stærsta öryggisáskorun samtímans sé ekki endilega alltaf skortur á vopnum þó að við megum auðvitað að gefa í þar. Það er líka skortur á samstöðu, trausti og seiglu samfélaga. Þetta eru tíðrædd stef en þau hafa samt mikið vægi. Við megum ekki láta samfélögin okkar brotna innan frá og það traust sem er þó til staðar enn þá á samkeppnishæfasta svæði heimsins sem ég vil meina að séu Norðurlöndin. Það er norræna gullið.

Þetta kann að hljóma pínu dramatískt en það má ekki vanmeta mikilvægi þess að almenningur hafi traust á stjórnvöldum, mikilvægi þess að jafnvel þótt við séum ekki sammála þeirri pólitík sem rekin er af ríkisstjórnum hverju sinni þá getum við samt treyst stjórnvöldum. Þau vinna ekki gegn okkur. Þetta skiptir máli í heimi þar sem ógnir eru ekki alltaf í einkennisbúningum með vopn í hendi vegna þess að ógnin birtist í formi upplýsingaóreiðu. Hún birtist í formi netárása, fjölþáttaógna, utanaðkomandi afskipta af innlendum stjórnmálum. Ísland hefur gríðarlegan hag af því að vera virkur þátttakandi í norrænu samstarfi með þjóðum sem finna oft og tíðum fyrir þessum ógnum fyrr en við og vita hvernig gott er að bregðast við. Við eigum líka að kalla eftir því að Færeyjar, Álandseyjar og Grænland eigi þar sæti við borðið.

Forseti. Við verðum að tala saman um næstu skref hvað varðar Evrópu. Það er til fólk sem vill að við ræðum það ekki og ef það á að ræða það þá er það hreinlega til þess að segja alltaf nákvæmlega það sama sýknt og heilagt. Umræðan er þannig að maður fær á tilfinninguna að annaðhvort sé um að ræða endalok íslensks fullveldis eða töfralausn sem á við í öllum mismunandi málaflokkum. Ég hef ekki velþóknun á slíku og ég hreinlega tek ekki þátt í því. Ég ætla að leggja áherslu á það að þetta er ekki svart eða hvítt. Evrópusambandið á ekki alltaf við, nei, en það á oft við. Þetta er í lok dags líka gríðarstórt innanríkismál þótt yfirskrift umræðunnar hér sé alþjóðamál. Þetta er 450 milljóna manna viðskiptamarkaður. Þetta er okkar mikilvægasti, langnærtækasti og besti markaður. Jafnvel þótt hér sé verið að nefna tækifæri á Indlandi og í Ástralíu þá kemur það ekkert í staðinn. Við flytjum út til ESB meira en tvo þriðju af okkar útflutningi og innflutningur vara þaðan nemur tæplega helmingi. Þetta er okkar viðskiptamarkaður og er það vegna þess að hann er samkeppnishæfari en hinir. Við höfum valið Evrópska efnahagssvæðið. Við megum greinilega ekki ræða áskoranir sem fylgja því að standa utan Evrópusambandsins og hafa ekki eiginlegt aðgengi að ákvörðunum sem þar eru teknar. Það fylgja því miklir kostir og já, það eru áskoranir sem fylgja því samhliða. Umræðan er ofsalega skautuð, hún er mjög skautuð og hún er ekki upplýsandi. Almenningur veit ekki hvar við stæðum frammi fyrir ef við gengjum aftur til aðildarviðræðna eins og sakir standa. Þetta er a.m.k. upplifun almennings. Ég finn að fólk er forvitið og hefur opinn huga, vill vita meira og mögulega hræðir það þá sem vilja að þjóðin verði áfram klofin í herðar niður í þessu máli, hafa bara status quo því það kann hreinlega að henta stjórnarandstöðuflokkunum betur en hitt. Stjórnarandstaðan þráast við að gefa íslenskri hagsmunagæslu falleinkunn að ósekju, stjórnarandstaða sem hefur gert allt til þess að gera tvíhliða samstarf við Evrópusambandið í öryggis- og varnarmálum tortryggilegt, tvíhliða samstarf sem frjáls og fullvalda þjóð á að vera stolt af að geta haft við sína mikilvægustu viðsemjendur.

Ég kalla eftir því að umræðan fari upp á hærra plan og sannarlega út fyrir þennan þingsal. Við getum efnt til alls konar sérstakra umræðna um margra ára gamlar skýrslur en okkur sárvantar þátttöku þeirra sem eiga líka að sinna hagsmunagæslu. Ég segi þetta með fullri virðingu fyrir fólkinu sem hér er kjörið til setu á Alþingi. Við sinnum þessu ekki ein. Hvar er atvinnulífið? Hvar eru Bændasamtökin? Hvar eru Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi? Hvar er orkugeirinn, forseti? Hvar er verkalýðshreyfingin, samtök launþega í landinu? Þau ætla sér greinilega að skila auðu í þessari umræðu. Ætla framangreindir aðilar — og þetta var ekki tæmandi upptalning — sem hafa með þá þætti að gera sem falla út fyrir EES-samninginn og verða til umræðu við samningaborðið, ekki að gefa sig að þessari umræðu og þeim kostum og göllum sem fylgja því að fara í aðildarviðræður, sem er eitthvert stærsta hagsmunamál okkar samtíma? Eða skapar það hreinlega of mikla skautun fyrir þessa samstarfsaðila? Gæti mögulega eitthvað komið í ljós sem myndi varpa nýju ljósi á umræðuna? Væri það svo slæmt? Þarf það kannski átakanlega að gerast?

Forseti. Það er ekki í boði fyrir hagsmunasamtök í landinu að skilja já og nei-hreyfingar eftir með það verkefni að sinna upplýstri gagnrýnni umræðu um þessi mál. Ég kalla kannski hreyfinguna til ábyrgðar. Ég ætla ekki að gera lítið úr hlutverki já og nei-hreyfinga og þær eru mikilvægar, það þarf að rækta þær. En umræðan er ekki mjög gagnrýnin. Hvar eru fulltrúar þeirra sem eiga að gera almenningi kleift að átta sig á raunhæfum væntingum til þeirra gríðarlegu tækifæra sem búa í hugsanlegum aðildarsamningi við Evrópusambandið? (Forseti hringir.)

Forseti. Þetta andvaraleysi er ekki í boði. Þetta eru svik við almenning og hagsmunaaðila í landinu.