Staða alþjóðamála, munnleg skýrsla utanríkisráðherra.
Frú forseti. Ég veit hvað Evrópusambandið er. Það er okkar langmikilvægasti viðskiptamarkaður. Það sem við myndum hins vegar gera ef til aðildarviðræðna kæmi, sem er ekkert gefið, er það að ef til samþykktar á aðildarsamningi kæmi fæli það í sér grundvallarendurskoðun á öllum stofnsáttmálum Evrópusambandsins líkt og gerist alltaf þegar nýtt land gengur inn í Evrópusambandið. Það er staðreynd. Aðlögunin sem mörgum er mikilvægt að nefna alltaf þegar nýtt land gengur til liðs við Evrópusambandið á sér vissulega stað þegar nýtt land, sem ekki t.d. hefur staðið hálfpartinn inni í sambandinu í gegnum EES-samninginn eins og við, gengur til liðs við bandalagið. Við erum ekki í sömu stöðu og Moldóva eða Albanía. (Forseti hringir.) Við erum í mjög góðri samningsstöðu eins og hv. þingmaður benti réttilega á.