Staða alþjóðamála, munnleg skýrsla utanríkisráðherra.
Frú forseti. Ég spyr bara til að fara á dýptina: Hvernig undanþágur heldur hv. þingmaður að væru mögulegar fyrir Ísland? Væru þær eitthvað öðruvísi en fyrir öll hin löndin? Það er ekki mikið um varanlegar undanþágur. (Gripið fram í: Engar. )Þær eru engar. Kannski má segja: Danir eru ekki með evruna, en þetta eru mjög fáar undanþágur. Af hverju heldur hv. þingmaður að Ísland verði eitthvað öðruvísi?
Mig langar líka að spyrja: Hvað finnst hv. þingmanni um orð Össurar Skarphéðinssonar þess efnis að Viðreisn sé að klúðra málunum, kannski af því að hann veit að það er hvorki smart né smekklegt að svíkja öll kosningaloforðin? Það var nóg að Samfylkingin sveik öll kosningaloforð varðandi það að ætla ekki að hækka skatta. Núna náði hún í atkvæðin frá þeim sem vilja ekki fara í þessa Evrópuvegferð og flokkurinn ætlar að svíkja þau kosningaloforð líka. Hvað finnst hv. þingmanni um að svíkja hvert kosningaloforðið á fætur öðru?