157. löggjafarþing — 58. fundur,  22. jan. 2026.

Staða alþjóðamála, munnleg skýrsla utanríkisráðherra.

[14:32]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna. Ég náði nú ekki alveg hvernig hv. þingmaður reynir að útskýra svik Samfylkingarinnar fyrir kosningarnar en það er aukaatriði. Ég vil taka það fram að það sem hv. þingmaður sagði varðandi varanlegar undanþágur fyrir norræna landbúnaðinn er bara ekki rétt. Það eru engar varanlegar undanþágur. Þær þyrftu að fara í sameiginlegu landbúnaðar- og sjávarútvegsstefnuna en í þessari sameiginlegu stefnu var heimild fyrir þjóðríkin að veita ríkari stuðning við landbúnað fyrir norðan ákveðna breiddargráðu.

Af því að hv. þingmaður kallar hér eftir umræðu um Evrópusambandið þá fagna ég því og hv. þingmaður verður þá líka að taka hana. Nú hefur alveg komið fram og allir vita að það er ekkert leyndarmál hvað Evrópusambandið er. Ég vil fá að vita hjá hv. þingmanni hvað hún á við þegar hún talar um það að hún vilji semja við Evrópusambandið. Nú verður hv. þingmaður að svara. Það hefur aldrei verið gert þegar þjóðríki sækja um aðild að Evrópusambandinu. (Forseti hringir.) Þau eru aldrei að semja um nokkurn hlut, þau eru að ganga í Evrópusambandið. Ég vil fá að heyra frá hv. þingmanni um hvað á að semja.