157. löggjafarþing — 58. fundur,  22. jan. 2026.

Staða alþjóðamála, munnleg skýrsla utanríkisráðherra.

[14:35]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég hlýt nú að fá meira en eina mínútu eins og aðrir. Þetta er ekki varanleg undanþága. Þetta er partur af sameiginlegu sjávarútvegs- og landbúnaðarstefnunni. Það er Brussel sem ákveður það ef með einhverjum hætti kemur til breytinga því að völdin í þessum málaflokki fóru frá Helsinki og Stokkhólmi yfir til Brussel. Þú getur ekki samið um varanlegar undanþágur eins og stækkunarstjóri ESB sagði svo skýrt við þáverandi hæstv. utanríkisráðherra, Össur Skarphéðinsson, og til er á internetinu. Allir sem kynna sér þetta vita þetta. Og af því hv. þingmaður vísaði til þess að tala við útlendinga; ef ég reyni að útskýra það fyrir þingmönnum í aðildarríkjunum eða á Evrópuþinginu að stjórnvöld á Íslandi trúi því að hægt sé að semja um það hvað felist í því að vera í Evrópusambandinu, þá er í besta falli hlegið að þér (Forseti hringir.) — af því að hv. þingmaður vísaði til þess að það væri ekki nógu gott. Svo spyr ég, virðulegur forseti: Af hverju er slegið í bjölluna þegar ég er kominn yfir eina mínútu en ekki þegar aðrir eru komnir yfir eina mínútu?

(Forseti (EÁs): Forseti hvetur hv. þingmenn til að fylgjast með en það sama gengur yfir alla.)