Staða alþjóðamála, munnleg skýrsla utanríkisráðherra.
Virðulegi forseti. Heimurinn hefur sannarlega breyst. Með allsherjarinnrás Rússlands í Úkraínu erum við að horfa upp á allsherjarstríð í hjarta Evrópu, gamaldags landvinningastríð þar sem fullveldi þjóða og landamæri eru lítilsvirt. Við Íslendingar stöndum með Úkraínu í sjálfstæðisbaráttu hennar því þetta er lítið annað en það. Atburðir liðinna missera hafa sett öryggis- og varnarmál í öndvegi hér sem annars staðar. Tvö norræn ríki, Svíþjóð og Finnland, brugðust við með því að hverfa frá hlutleysisstefnu og ganga inn í varnarbandalag, ganga inn í NATO. Danir ákváðu að hverfa frá undanþágu frá varnarhluta ESB. Hér stendur „undanþága“ í ræðu minni, það er eins og ég átti mig ekki á því að engar slíkar séu veittar, en svo var engu að síður, Danir hurfu frá undanþágu frá varnarhluta ESB í þjóðaratkvæðagreiðslu. Hér á landi mældist stuðningur við vestrænt samstarf markvert hærri eftir 2022. Afleiðingarnar má t.d. sjá á samsetningu Alþingis þar sem nú er enginn flokkur sem er andvígur NATO.
Við höfum unnið að gerð nýrrar varnarstefnu. Sú stefna er nú til meðferðar hjá utanríkismálanefnd og ég bind vonir við að við náum saman um mjög breiðan stuðning um þá sýn sem við höfum á okkar varnir, enda er það mikilvægt þjóðaröryggismál. Ég tel ekki að sá skoðanamunur sem birst hefur í umræðum um öryggis- og varnarmál sé óbrúanlegur, raunar engan veginn.
Forseti. Undanfarin ár hafa breyttar áherslur og breyttur tónn nýrra stjórnvalda í Washington sannarlega breytt landslagi alþjóðastjórnmála. Fleiri virðast alla vega vera opinskárri með að það séu hrein völd og hreinn hernaðarmáttur sem ráði í heiminum og telja sig ekki þurfa að klæða sinn málflutning í lagalegan eða hugmyndafræðilegan búning. Þetta er einfaldlega heimur hinna sterku. Forsætisráðherra Kanada hélt í vikunni ágæta ræðu í Davos þar sem var fjallað um hver viðbrögð millistórra ríkja ættu að vera. Þau væru að kalla hlutina réttum nöfnum, átta sig á því að við erum að horfa upp á ákveðna vopnvæðingu viðskiptanna og að millistór ríki eins og Kanada ættu að treysta á sitt strategíska sjálfstæði, fjölga samstarfsaðilum og standa vörð um sameiginleg gildi. Margt af þessu má sannarlega heimfæra yfir á Ísland þó að við séum ekki millistórt ríki. En við erum heldur ekkert örríki. Við erum ekki örríki eins og Vatíkanið eða Mónakó en við erum lítið ríki og búum varla yfir þeim gallharða fælingarmætti gagnvart öðrum og stærri ríkjum sem þarf þegar kemur t.d. að hefðbundnum hernaði. En við getum sannarlega fjölgað samstarfsaðilum og staðið með þeim vörð um sameiginleg gildi sem við trúum á. Smærri ríki eins og Ísland eiga auðvitað töluvert undir því að alþjóðakerfið virki og í heimi þar sem hart vald eitt ræður för erum við í síðri stöðu. Þess vegna skiptir virk þátttaka í alþjóðasamstarfi máli. En smærri ríki, svo það sé sagt, eiga ekki allt sitt undir alþjóðalögum. Þannig hefur það aldrei verið. Íslendingar hafa þannig ekki byggt varnir sínar á stofnsáttmála Sameinuðu þjóðanna og virðingu fyrir honum einungis. Við höfum byggt þær á þátttöku í varnarbandalagi og varnarsamningnum við Bandaríkin. En minnki mikilvægi alþjóðalaga er leið ríkja eins og okkar til að styrkja og efla þátttöku sína sú að styrkja og efla þátttöku sína í fjölþjóðlegum bandalögum, bandalögum um pólitík, varnir og viðskipti.
Þegar við horfum á nýlega tilburði Bandaríkjanna gagnvart Grænlandi er að mínu mati enginn vafi á því að vera Danmerkur í Evrópusambandinu hefur skipt þar máli. Ég sótti nýlega formannafund COSAC, sem er þingmannaráðstefna Evrópunefnda þjóðþinga ESB og vinveittra ríkja, og hlustaði þar á málflutning fulltrúa Danmerkur sem var alveg skýr. Fulltrúi Dana þakkaði Evrópu fyrir stuðninginn og sagði hreint út: Ég veit ekki hvar við værum án Evrópusambandsins.
Spurningin er kannski þessi: Í heimi þar sem vald skiptir öllu, viljum við hafa fleiri ríki sem væru lagalega, efnahagslega og pólitískt skuldbundin til að vera með okkur í liði? Mér finnst svarið við því nokkuð borðleggjandi. Við eigum að taka þátt í fleiri bandalögum með líkt þenkjandi þjóðum. Við eigum auðvitað að vera áfram í NATO, styrkja það samstarf. Við eigum að styrkja og efla okkar varnarsamskipti við Bandaríkin og önnur samskipti. Við eigum að hlúa að samstarfi norrænna ríkja og Eystrasaltsríkja í svokölluðum NB8-hóp, sem er orðinn eitt allra mikilvægasta pólitíska bandalagið sem við erum í. En við eigum líka að horfa til Evrópusamstarfs. Við erum auðvitað með EES-samninginn og tökum þátt í EES. Mér finnst gæta einhvers misskilnings hér að með því að taka þátt í ESB þá tökum við minni þátt í EES-samningnum. Það er alls ekki svo. Þegar Króatía gekk í Evrópusambandið þurftum við að samþykkja inngöngu Króatíu inn í EES hér á þinginu og þegar næstu ríki munu ganga í Evrópusambandið munum við líka þurfa að taka fyrir einhverja samninga hér til að liðka fyrir þeirri stækkun EES-svæðisins þannig við erum og verðum áfram hluti af EES-samningnum, hvort sem við stöndum innan Evrópusambandsins eða ekki. En EES-samningurinn og EES-samstarfið er auðvitað samningur milli ESB-ríkjanna og EES-EFTA-ríkjanna um innri markaðinn. Hann er ekki pólitískt bandalag í eðli sínu. Við erum því ekki hluti af því pólitíska bandalagi sem Evrópusambandið er. Það þjónar að mínu mati hagsmunum Íslands að vera þátttakandi í því pólitíska bandalagi hátt í 30 líkt þenkjandi ríkja. Það er minni áhætta fyrir þjóðir eins og okkur að taka þátt í slíku samstarfi heldur en að gera okkur t.d. mjög háð einu stóru ríki. Í heimi þar sem stríð þekkjast ekki er engin ástæða til að vera með her eða taka þátt í varnarbandalagi í sjálfu sér en við búum ekki í þannig heimi og þess vegna hugsum við um okkar varnir og tökum þátt í varnarbandalögum og erum með varnarsamning. Á sama hátt í heimi þar sem tollar og viðskiptaþvinganir myndu ekki þekkjast þá væri kannski engin sérstök ástæða til að huga að þátttöku í tollabandalagi. En við erum því miður ekki að horfa fram á þannig heim. Heimurinn er því miður að færast frá þeirri átt. Þá er það aftur spurning um bara grjóthart hagsmunamat á því hvort okkar hagsmunum sé ekki betur borgið í slíku samstarfi í viðskiptabandalagi.
Ég veit ekki hvort þingheimur man eftir því þegar vélum fullum af ólöglegum innflytjendum var flogið frá Bandaríkjunum til Kólumbíu fyrir ári síðan. Kólumbía sagði: Við ætlum ekki að leyfa þessum vélum að lenda í Kólumbíu. Þá sögðu Bandaríkin: Já, þá ætlum við bara að leggja 25% toll á ykkur og ef þið leyfið vélunum ekki að lenda þá ætlum við að leggja 50% toll á ykkur eftir viku. Kólumbía gaf eftir, auðvitað gáfu þeir eftir, þeir voru ekki með sterka samningsstöðu, eru mjög háðir viðskiptum við Bandaríkin. Þeir voru vissulega með tvíhliða viðskiptasamning sem þegar á hólminn var komið gaf þeim enga vörn. Það er alltaf hægt að búa til eitthvert „scenario“, ég ætla að reyna að forðast að gera það, en ef til þess kæmi að einhver myndi ákveða að beita okkur einhverjum svona aðgerðum — sem er alltaf að gerast meira og meira, því miður, að ríki reyni að fá sínu fram með því að beita viðskiptaþvingunum — hvort myndum við á þeirri stundu vilja vera hluti af stærri viðskiptablokk eða ekki? Mér finnst svarið við því líka liggja nokkuð beint við. Við myndum vilja að einhver væri með okkur í liði, að einhver teldi sig lagalega, efnahagslega og pólitískt skuldbundinn til að vera með okkur í liði.
Síðan er það þátttaka í myntbandalagi. Ég ætla ekki að halda því fram að það sé einungis út frá stöðu heimsmála sem ég telji að það sé sniðugt fyrir okkur að huga að öðru fyrirkomulagi myntmála. Ég myndi líklegast vilja taka upp evru, jafnvel í heimi þar sem ást og friður ríkti og viðskiptaþvingunum og tollum yrði aldrei beitt og viðskipti myndu bara snúast um viðskipti og aldrei um þvinganir eða áhrif eða pólitískan þrýsting. En í heimi þar sem önnur ríki geta með annaðhvort yfirlýsingum eða aðgerðum nýtt sér veikleika lítilla gjaldmiðla þá finnst mér það aftur vera spurning um ískalt hagsmunamat hvernig við tryggjum okkur gagnvart þannig hættum. Samningar við önnur ríki eða þátttaka í myntbandalagi eru sannarlega leiðir til þess.
Það hefur aðeins verið rætt um hvort það sé gott að kljúfa þjóðina með því að taka umræðu um Evrópumál og boða til þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhald viðræðna á þessari stundu. Auðvitað er það sjónarmið sem má ræða. En niðurstaðan getur samt verið sú — tökum sem dæmi lönd eins og Svíþjóð og Finnland þar sem innganga í NATO var í rauninni hálfgerð jaðarskoðun fram til ársins 2022, en sú umræða breyttist mjög hratt strax eftir allsherjarinnrásina. Þá óx stuðningur bæði meðal almennings og pólitískur stuðningur við inngöngu bæði Svíþjóðar og Finnlands í NATO. Svo var sú vegferð kláruð og í dag held ég að það sé nokkur pólitískur einhugur um þá niðurstöðu. Auðvitað getum við stundum tekist á hér um umdeild málefni en svo kemur einhver niðurstaða úr því og ég ímynda mér að þegar Ísland hefur tekið sína ákvörðun um hvar það standi í samstarfi Evrópuþjóða þá muni ríkja nokkuð breið sátt um það. Ég segi það vegna þess að í flestum ríkjum sem hafa gengið í Evrópusambandið hefur það verið niðurstaðan, jafnvel í ríkjum eins og Möltu þar sem aðildin var mjög umdeild á sínum tíma. Þar voru bara tveir flokkar, annar var algerlega með og hinn algjörlega á móti og þjóðin skiptist nokkurn veginn í tvennt í kosningum og þjóðaratkvæðagreiðslu um málið. En engu að síður núna, 20 árum eftir að Malta gekk inn í Evrópusambandið, þá virðist ekki vera stórt ákall um að gera breytingar á því samstarfi. Það kann vissulega að vera að á þeim tíma sem við eigum umræðu um þátttöku okkar í Evrópusamstarfinu þá geti sú umræða verið heit, en síðan segir mér svo hugur að við munum öll una þeirri niðurstöðu sem þar verður, alla vega muni flestir á hinu pólitíska litrófi einfaldlega vinna með þá niðurstöðu.
Virðulegur forseti. Ég vil að endingu nefna bara til áréttingar að við eigum ávallt að vera ákveðin og staðföst þegar kemur að samskiptum við fulltrúa annarra þjóða og gæta hagsmuna Íslands í hvívetna. Ég vil benda á að frá því að til varnaraðgerða vegna járnblendis var gripið af hálfu Evrópusambandsins hef ég notað alla fundi sem ég hef mætt á fyrir Íslands hönd til að gagnrýna þá ráðstöfun og talið hana hvorki lögmæta né raunar skynsamlega fyrir Evrópusambandið sjálft. Að sama skapi eigum við heldur ekkert að hvísla í kragann þegar önnur bandalagsríki gantast með okkar fullveldi eða fullveldi annarra þjóða. Kannski standa svolítið saman í því, finnst mér. Aðalmálið er hagsmunir Íslands og ég skynja reyndar í flestum málum nokkuð góðan samhljóm um stóru línurnar í utanríkismálum í þinginu.
Forseti. Ég þakka góða umræðu. Ég hef lokið máli mínu.