Staða alþjóðamála, munnleg skýrsla utanríkisráðherra.
Virðulegur forseti. Þetta með Evrópusambandið og EES minnir mig svolítið á brandara sem ég heyrði þar sem einhver gaur situr á spjalli og kemur með tilkynningu: Við Magga erum ekki lengur kærustupar. Þá kemur einhver og svarar: Það er frábært, ég fílaði hana aldrei. Svar hins er: Nei, við erum sko búin að gifta okkur. Mér finnst þetta svolítið þannig. Augljóslega er heildarmynd þess að vilja ganga inn í Evrópusambandið sú að styrkja enn frekar hinn innri markað og þátttöku okkar í honum. Ég veit að ég hræði nú marga ESB-andstæðinga með því að hóta því að við séum að fara að giftast Evrópusambandinu en mér finnst samlíkingin ágæt. Það að vilja ganga inn í Evrópusambandið styrkir auðvitað veru okkar inni á hinum sameiginlegu mörkuðum og þegar talað er um að það sé einhver leið til að fórna EES-samningnum finnst mér það dálítið skrýtið.
Varðandi varanlegar undanþágur þá byrjaði ræðumaðurinn t.d. á því að nefna það að fyrir einhverjum tveimur árum kusu Danir í þjóðaratkvæðagreiðslu um að falla frá varanlegri undanþágu sinni í varnarmálum. (GÞÞ: Segðu.) Það var það sem var kosið um og Danir eru líka með varanlega undanþágu frá þátttöku í evrunni og þátttöku í dómsmálum. Það eru Írar líka. Þeir eru með varanlega undanþágu frá því að taka þátt í Schengen-samstarfinu og þeir eru líka með varanlega undanþágu í varnarmálum vegna þess að þeir eru hlutlaus þjóð. Bretar voru líka með varanlega undanþágu frá Schengen þegar þeir voru í því samstarfi og borguðu reyndar lægri aðildargjöld til Evrópusambandsins. Eru þetta dæmi sem við myndum vilja reyna að sækjast eftir? Ég veit það ekki. Ég ætla ekki að mæta til þessa samtals með hugarfar hv. þm. Guðlaugs Þórs Þórðarsonar sem segir að ekki sé hægt að ræða neitt við neinn. Þess eru alla vega klárlega dæmi að veittar séu varanlegar undanþágur eins og þessar sem ég taldi upp.