Staða alþjóðamála, munnleg skýrsla utanríkisráðherra.
Virðulegur forseti. Ég ætla að byrja á því að andmæla því að Evrópa geti alls ekki varið sig sjálf og ég vitna þar ekki bara í eitthvað sem ég hef skrifað heldur vitna ég þar reyndar í það sem Bandaríkjamenn hafa sagt í nýrri þjóðaröryggisstefnu sinni. Bandaríkjamenn hafa sagt að Evrópa ætti að sýna sjálfstraust og átta sig á því að Evrópa hefur sannarlega efnahagslegan mátt og iðnaðarmátt til að standast ógn úr austri og það er kannski bara þegar kemur að kjarnorkuvopnum sem Evrópa myndi standa höllum fæti í slíkri viðureign. Þarna er okkar bandamaður í vestri að tala upp Evrópu og segja að hún geti sannarlega staðið sig í stykkinu. Þá er ég ekki að segja að út af því þá eigum við einhvern veginn að hætta öllum samskiptum og varnarsamstarfi við Bandaríkin, alls ekki. En það er ekki hægt að tala þannig að Evrópa búi ekki yfir einum eða neinum mætti. Evrópusambandið tekur þátt í ýmsum aðgerðum, aðallega í friðargæslu og minni háttar átökum bæði á Miðjarðarhafssvæðinu og á Balkanskaga, þannig að svo það sé sagt þá er það ekki þannig að Evrópa hafi enga burði til að verja sig sjálf.
Varðandi þá tvíhliða fundi sem hafa átt sér stað þá held ég að því hafi verið svarað með þeirri upptalningu sem þarna er. Ég veit að ráðherrar hafa fundað með fulltrúum bandarískra stjórnvalda og ráðherrum í tengslum við stóra fundi sem er reyndar sú leið sem við höfum oftast stuðst við til að ná fundum með þeim. Varðandi tollabandalagið þá er ég á þeirri skoðun að eins og heimurinn er núna felist hagsmunir í því að vera í ákveðnu skjóli. Ég átta mig á að þetta er tollabandalag en ég myndi telja að í þessu tilfelli væri það okkur til happs að vera þátttakandi í því og við getum ekki algjörlega lagt að jöfnu það að Evrópusambandið eftir eitt ár (Forseti hringir.) leggi til einhverjar aðgerðir sem við vissulega mótmælum og andmælum og það (Forseti hringir.) að ríkið segi: Ég ætla að innlima hluta af einhverju öðru ríki annars beiti ég ykkur verndartollum. Mér finnst það ekki algerlega sambærilegt.