157. löggjafarþing — 58. fundur,  22. jan. 2026.

Staða alþjóðamála, munnleg skýrsla utanríkisráðherra.

[16:31]
Horfa

utanríkisráðherra (Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir) (V):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka fyrir þessa umræðu. Það hafa verið hvöss orðaskipti enda stór og mikil mál undir. Það sem ég ætla þó að leyfa mér að taka úr þessari umræðu, þrátt fyrir að það sé stundum kannski eitthvert ójafnvægi í umræðunni inn á milli, er að við erum sammála um það að við séum með traust sambönd, bæði vestur yfir og til Evrópu og við aðrar þjóðir. Við þurfum að byggja áfram á því. Það hefur þessi ríkisstjórn verið að gera og við ætlum að halda áfram að gera það. Það þarf ekki síst á þessum tímum, að mínu viti, að sýna að við Íslendingar séum verðugir bandamenn, að við tökum þátt í alþjóðasamstarfinu eins og á forsendum og undir hatti NATO. Það skiptir gríðarlega miklu máli að það sé alveg skýrt. Það sama gildir að sjálfsögðu um mikilvæga alþjóðasamninga af því að efnahagslegt öryggi getur leitt til óöryggis og getur leitt síðan til óvissu og hugsanlega stríðs. Þetta þekkjum við í sögunni. Þess vegna þarf að tryggja þau tæki sem við höfum og það er þessi ríkisstjórn að gera. Hún ætlar að gera allt til þess að verja EES-samninginn og auðvitað mun reyna á það líka hér í þinginu, m.a. með afgreiðslu á málum frá hv. utanríkismálanefnd, þannig að það skiptir máli.

Það sem við höfum verið að gera á sviði varnar- og öryggismála skiptir líka máli. Ég tek undir að það kemur ekkert í staðinn fyrir aðildina að NATO, okkar dýrmætustu stoð í varnarmálum okkar. Það kemur heldur ekkert í staðinn fyrir Bandaríkin en ég held að við hljótum að viðurkenna það að af því að staðan er svona þá hefur ríkisstjórnin verið að taka rétt skref með því að fjölga og breikka stoðirnar. Það er ekkert sem kemur í staðinn fyrir þetta en við hljótum að vera sammála um það að á þessum tímum ætlum við ekki ein þjóða að breyta engu. Við vitum alveg hvaða ákvarðanir t.d. Danir tóku varðandi fyrirvarann varðandi varnarmál innan Evrópusambandsins. Við vitum líka hvað Finnar og Svíar gerðu á sínum tíma með því að fara strax inn í NATO. Síðan bæði Úkraínustríðið hófst og síðan að við höfum séð þessa væringar og upplifað raunverulega breytingu á heimsmyndinni þá getum við Íslendingar ekki sagt: Nei, við ætlum ekki að fara í tvíhliða samkomulag við ríki eins og við höfum verið að gera eða tala við Evrópusambandið. Ég skil ekki af hverju þessi viðkvæmni er um að klára og gera þessa öryggis- og varnaryfirlýsingu við Evrópusambandið sem Kanada er búið að gera, sem Noregur er búinn að gera, sem Bretland er búið að gera. Það er bara það sem stjórnarandstaðan er að mínu mati búin að gera. Hún er búin að gera þetta tortryggilegt. Það finnst mér miður af því að við þurfum að breikka stoðirnar. Allt í lagi ef stjórnarandstaðan er þeirrar skoðunar að við eigum ekki að gera neitt annað í varnarmálum en að stóla á varnarsamninginn frá 1951, sama varnarsamning og Danir eru með, þá er það bara afstaða. Ég er ósammála þeirri afstöðu að við eigum bara að gera það.

Það sem við höfum hins vegar gert, við Íslendingar, og ég ætla að hrósa þeim sem á undan mér hafa verið, er að við höfum byggt upp betra og sterkara samband þegar kemur að varnar- og öryggismálum. Við höfum verið að fjárfesta á síðustu misserum og árum í varnar- og öryggismálum. Það skal draga fram það sem vel er gert. Það sem hefur gerst líka, og það hefur reynt á það undanfarið líka, er að við höfum haft samband og það hefur verið haft samband við okkur út af ýmsum málum sem tengjast varnar- og öryggismálum og sambandið hefur verið gott, það hefur verið upplýsandi, hefur verið sterkt og það verður engin breyting á því eða að ætla einhverjar breytingar hvað það varðar. Það breytir því ekki að við hljótum að þurfa að taka meðvitaða ákvörðun um það hvort við ætlum að hafa öll eggin í sömu körfunni eða fjölga þeim stoðum sem eru núna í varnar- og öryggismálum. Við þurfum að átta okkur á því að undir forystu þessarar ríkisstjórnar hafa einmitt verið tekin skref í að skjóta frekari stoðum undir varnarsamstarfið, bæði við ríki vestan hafs og austan og við höfum beitt okkur mjög á sviði NATO.

Ég tel mjög sérstakt ef við ætlum ekki að þora að ræða það þegar málin eru að þróast með þessum hætti. Við höfum blessunarlega verið inni á milli með mjög fínar ræður sem hafa verið einmitt að draga fram þetta skipulag sem mótaðist eftir seinni heimsstyrjöldina sem er svolítið að molna undan. Þegar maður er á svona tímamótum þá þurfum við líka að hafa bæði hugrekki og kjark til þess að skoða hlutina af yfirvegun og frá öllum sjónarhornum. Ég hef minnst á Carney frá Kanada hér í dag. Þar var áhersla m.a. á samstöðu margra ríkja sem eina mótvægið við hegðun stórvelda sem ætla sér að fara sínu fram. Lykilatriði í því er einmitt að lítil ríki og meðalstór fari ekki að gera, frekar buguð, tvíhliða samninga við stórveldin í þeirri von um að koma sér í skjól á meðan lumbrað er á einhverjum öðrum. Miklu frekar er það þessi veruleiki sem við þurfum að þora að tala svolítið upphátt um þannig að bæði almenningur og stjórnmálin taki ábyrga ákvörðun um það að upplýsa að það séu breytingar að eiga sér stað og þá verðum við að átta okkur á því að það er mikilvægt að við tengjumst enn sterkari böndum Kanada já, Bretlandi já, Noregi já en líka Evrópusambandinu. Mér finnst það hættulegt, af því það er eitur í beinum sumra að tala um Evrópusambandið, að útiloka það í þeirri veröld og mynd sem er að byggjast upp.

Evrópusambandið er að byggja upp sínar varnir. Hefði það getað gert það fyrr? Já, en það er að gera það. Það stefnir að því að geta staðið undir því sem það þarf að standa undir í kringum 2030. Það er verið að fjárfesta markvisst í hergögnum, í framleiðslu, í öllum aðfangakeðjum sem snerta varnir og her. Við sjáum það líka að ekki síst NATO treystir á Evrópusambandið þegar kemur að fjölþáttaógnum. Af hverju getum við ekki leitað til Evrópusambandsins einmitt þar? Ég hef heyrt m.a. Sjálfstæðismenn, fyrrum þingmenn hér, tala á mjög ábyrgan hátt um að við eigum að leita samstarfs við Evrópusambandið sem hefur sérhæft sig einmitt í þessum fjölþáttaógnum sem steðja m.a. að okkar neðansjávarinnviðum, netöryggi o.s.frv. Ég bið fólk að spyrja ekki bara hvaðan gott kemur. Við þurfum að leita alls staðar að því sem við getum styrkt okkur í.

Það er líka vert að hafa í huga þegar við erum að tala um þetta alþjóðakerfi sem hefur verið okkur Íslendingum svo mikilvægt og dýrmætt og þessi lífsgæði sem það hefur í rauninni búið til fyrir okkur sem við höfum staðið frammi fyrir og fengið í samfélögum Vestur-Evrópu, þessi mikilvægu lífsgæði þegar maður skoðar sögu mannkyns, hvað við höfum öðlast með þessu alþjóðakerfi. Við verðum samt sem áður að muna að þetta byggist allt á hugmyndinni um að til þess að standa vörð um frið í heiminum þurfi að tryggja frelsi einstaklinganna. Það var þetta sem kerfið m.a. stuðlaði að og allir voru mjög meðvitaðir um á sínum tíma þegar þeir tóku farsælar ákvarðanir, m.a. að verða aðili að NATO til að beita og styrkja fullveldið fyrir Íslendinga, fyrir friðinn en ekki síst á endanum fyrir frelsi einstaklinganna. Þetta hefur m.a. búið til bestu samfélögin í sögu mannkyns.

Við getum byggt upp framtíð einmitt með vinum okkar vestan hafs sem austan. Það er ekki það að við það að verða aðili að Evrópusambandinu þá sé ekki hægt að tala við Bandaríkin, alls ekki, síður en svo. Það gerist bara á hverjum degi að þjóðirnar eru að vinna saman, m.a. innan Atlantshafsbandalagsins, en við verðum að vera hreinskilin og þora að spyrja okkur hvernig við getum breikkað stoðirnar undir öryggi okkar á sviði varna, hvernig við getum treyst öryggi okkar á sviði efnahagsmála og pólitísks samstarfs og það með því að fara í aukið samstarf og samvinnu, hvort sem það er við Evrópusambandið en líka aðrar þjóðir sem falla þar utan. Það er út á það sem okkar hagsmunagæsla gengur; að tala við fólkið okkar í Bandaríkjunum, í Kanada, jafnvel fyrir utan líka, þegar það skiptir máli, líkt þenkjandi þjóðir í Asíu eða Suður-Ameríku. Við erum búin að gera fríverslunarsamning núna undir EFTA-hattinum, við hefðum ekki getað náð honum ein en við gerðum það í samvinnu við EFTA-ríkin, til að mynda við Mercosur-löndin. Þetta skiptir allt máli til að fjölga stoðunum undir öryggi okkar, öryggi heimilanna, öryggi landsins okkar og þjóðarinnar sem slíkrar. Það eru merkilegir tímar sem við stöndum frammi fyrir. Mesta áskorunin er að við sem tilheyrum stjórnmálunum útilokum ekki fyrir fram þá möguleika sem geta styrkt enn frekar stoðir landsins á sviði varnarmála, efnahagsmála og félagsmála, svo ég tali nú ekki um að við eflum enn frekar okkar pólitíska samstarf sem hefur verið okkur gríðarlega mikilvægt, að geta milliliðalaust talað við forystufólk í öðrum löndum.