157. löggjafarþing — 58. fundur,  22. jan. 2026.

Staða alþjóðamála, munnleg skýrsla utanríkisráðherra.

[16:44]
Horfa

utanríkisráðherra (Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir) (V) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég dró fram hér áðan að það hefði margt verið unnið og gert hjá forverum mínum í embætti á síðustu árum, ég myndi segja alveg frá 2016, að mínu mati. Þegar kemur að fjölþáttaógnum þá held ég, með fullri virðingu, að á fáum sviðum hafi verið jafn hraðar og miklar breytingar og á sviði fjölþáttaógna og það vitum við sem vorum m.a. í ýmsum nefndum hjá NATO, við höfðum vart undan að fylgjast með þeirri þróun sem átti sér stað í fjölþáttaógnum sem eru alltaf að breytast í rauninni frá degi til dags. Það eru ný vopn notuð og vopnin eru með mismunandi hætti. Við sjáum að Rússar hafa beitt m.a. innflytjendum til þess að ógna öryggi, til að mynda eins og var gert í Finnlandi þangað til að Finnar lokuðu bara fyrir það, þeir ýta undir flóttamannastraum til að rugla samfélög Evrópu. Við sjáum árásir á innviði neðansjávar og skuggaflotann og það er tækniþróun. Það sem hefur verið að gerast, ekki síst innan NATO og í tengslum við Evrópusambandið, er að þessi tvö bandalög og sambönd hafa verið að einbeita sér og fókusera á fjölþáttaógnir. Og í varnarsamningnum, við skulum hafa það á hreinu, er ekkert skýrt að fjölþáttaógnir falli ótvírætt undir hann. Það er ekki þannig. Þetta er svið sem við þurfum að treysta enn betur í samráði og samvinnu við Bandaríkin en líka aðrar aðildarþjóðir bandalagsins og þær eru að meginhluta til innan Evrópusambandsins.

Ég kem að tollunum í mínu seinna andsvari og mun fara yfir samningsstöðu Íslands.