Staða alþjóðamála, munnleg skýrsla utanríkisráðherra.
Virðulegur forseti. Það var alveg skýrt af Íslands hálfu og Noregs hálfu, sem samhæfðu mjög vel aðgerðir sínar gagnvart Evrópusambandinu, að það væri verið að brjóta gegn EES-samningnum. Við töldum það og það var okkar afstaða. Við höfðum hins vegar nokkrar vikur og góðan tíma til þess að draga einmitt fram hvaða áhrif þetta hefði á samstarfið. Við fengum engan fyrirvara þegar tollar voru lagðir á af hálfu Bandaríkjanna, engan fyrirvara, ekkert samtal við vinaríki til 75 ára. Við erum að fagna 75 ára afmæli varnarsamnings núna. Niðurstaðan varð sú, þrátt fyrir að ég sé alveg skýr með það að ég telji að þetta hafi farið gegn EES-samningnum, þá var niðurstaðan samt sú eftir að við beittum pólitískum þrýstingi og gríðarlegri hagsmunagæslu þar sem öll ráðuneyti voru virkjuð, öll samtöl voru virkjuð, fólk í utanríkismálanefnd gerði það líka — efnahagsleg niðurstaða er íslenska fyrirtækinu uppi á Grundartanga ekki óhagfelld. Prinsippið er samt það að ég tel að samningurinn hafi verið brotinn (Forseti hringir.) og þess vegna vildi ég fá enn frekari skýringu á því í hverju nákvæmlega efnahagslegt öryggi felst.