157. löggjafarþing — 58. fundur,  22. jan. 2026.

Staða alþjóðamála, munnleg skýrsla utanríkisráðherra.

[16:49]
Horfa

Diljá Mist Einarsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir ræðuna. Ég kem hingað upp til að gera athugasemd við það orðalag hæstv. ráðherra hvort við Íslendingar ætlum ein þjóða ekki að breyta neinu. Þetta er náttúrlega í mikilli mótsögn við það sem hún fór síðan yfir sjálf í ræðu sinni og hv. þm. Guðlaugur Þór Þórðarson áréttaði hér, allar þær aðgerðir og þau stóru skref sem voru stigin í ráðherratíð Sjálfstæðisflokksins í utanríkisráðuneytinu; framkvæmdir á öryggissvæðinu, varnarmálaskrifstofan, Bjarnaból, fjölþáttaógnadeildin, samskipti við Bandaríkin, JEF-sveitin, samskipti við Bretland, Kanada og Eystrasaltsþjóðirnar, skýrslurnar sem við höfum gert um norðurslóðir og um Grænland og svo mætti lengi telja. Það voru nefnilega ekki allir sem vöknuðu bara fyrst upp við vondan draum í öryggis- og varnarmálum fyrir korteri síðan eins og Evrópusambandið. Það voru einhverjir sem voru að hlusta og fylgjast með því sem Rússar voru að gera og hlusta á varnaðarorð Pólverja og hlusta á varnaðarorð Eystrasaltslandanna. En það er gott að hæstv. ráðherra hafi þó haldið því hér til haga. Það er auðvitað bara verið að drepa málum hér á dreif með því að tala endalaust um einhverjar tvíhliða almennar varnaryfirlýsingar, ekki það að hæstv. ráðherra áréttar sömuleiðis að þetta komi auðvitað ekki í staðinn fyrir neitt annað. En það er verið að beina athyglinni frá aðalatriðum máls sem eru auðvitað hvernig við best tryggjum öryggi okkar heimshluta, hvernig við tryggjum best öryggi á norðurslóðum og Norður-Atlantshafi. Og þó að hæstv. ráðherra komi hér í pontu og segi: Auðvitað eigum við vera í góðu samtali við Bandaríkin og Bretland og Kanada, þá hef ég af því þungar áhyggjur að þegar ég fylgist með störfum hæstv. ráðherra og hæstv. ríkisstjórnar þá sé ég ekki þessi verk. Það er alltaf verið að drepa málum á dreif með því að tala um undirritun einhverra samkomulaga og fara með ráðamenn Evrópusambandsins í þyrluferðir, taka af því myndir og birta. Þetta eru áherslurnar.

Ráðherrarnir okkar geta auðvitað ekki verið alls staðar og ég kalla eftir (Forseti hringir.) skýrari forgangsröðun, betri forgangsröðun og að það sé ekki bara talað um þessi mál hér í pontu þegar við komum saman til að ræða málin heldur að það sé gert eitthvað í þessum efnum til að styrkja varnir okkar.