157. löggjafarþing — 58. fundur,  22. jan. 2026.

Staða alþjóðamála, munnleg skýrsla utanríkisráðherra.

[16:51]
Horfa

utanríkisráðherra (Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir) (V) (andsvar):

Virðulegur forseti. Það er ekki hægt að koma hingað upp í pontu að mínu mati, verandi líka í hv. utanríkismálanefnd, og segja að ekkert sé gert. Að mínu mati er þá verið að tala hagsmuni Íslands niður, sérstaklega þegar búið er að upplýsa utanríkismálanefnd til að mynda um nákvæmlega hvaða samtöl eru í gangi þegar kemur að vöruviðskiptum og tollum. Það eru viðkvæm samskipti sem utanríkismálanefnd er meðvituð um. Við erum að fikra okkur áfram í góðum samskiptum einmitt við Bandaríkin. Samskipti við Bandaríkin eru góð á sviði varnar- og öryggismála, ég hefði viljað sjá þau betri á sviði viðskiptamála. Ég hefði viljað sjá það að svona ákvarðanir gagnvart vinaþjóðum séu ekki teknar einhliða og algerlega án neinnar söguskoðunar. Það er verið að vinna að þessu, eins og ég segi, bæði vestur yfir haf og yfir til Evrópu.

Þar sem ég vildi hins vegar nefna — ég verð örugglega gagnrýnd fyrir það að drepa málinu á dreif, en ég náði því ekki í minni ræðu áðan og ekki í andsvari við hv. þingmann sem ég kláraði áðan. Við höfum réttilega beitt rödd okkar hér á Íslandi með miklu markvissari og ákveðnari hætti í málefnum Palestínu og þá sérstaklega Gaza, en Ísland á líka sæti í mannréttindaráði Sameinuðu þjóðanna og þar stöndum við vörð um mannréttindi og gildi sem eiga mjög á brattann að sækja og að frumkvæði Íslands og eftir að hafa barist fyrir því þá höfum við einmitt fengið sett á dagskrá málefni Írans og þeirra mannréttindabrota sem er verið að fremja á mótmælendum í Íran. Sú umræða verður á morgun í Genf þar sem við munum einmitt vera í forystu fyrir því að ræða þessi mál. Þetta er sett á dagskrá mannréttindaráðsins með afgerandi hætti undir forystu Íslands og með miklum stuðningi m.a. Þýskalands þegar kemur að þessu. (Forseti hringir.) Þess vegna skiptir máli að við notum og beitum okkar rödd um þau gildi sem við viljum standa fyrir og þetta er dæmi um að við getum beitt rödd okkar á alþjóðavísu.