Staða alþjóðamála, munnleg skýrsla utanríkisráðherra.
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið. Mig langar til að byrja á því að hrósa hæstv. ráðherra fyrir að taka upp málefni Írans og halda áfram á þeirri vegferð. Ég hef tekið þessi mál ítrekað upp hér í þinginu og það hefur verið góð samstaða um það í þinginu og það er ánægjulegt að heyra að það sé verið að fylgja þessu eftir.
Varðandi það sem ég kom inn á hér í fyrra andsvari mínu og orð ráðherra um að ég sé að tala niður starf Íslands þá er ég bara að vísa í orð hæstv. utanríkisráðherra sjálfs um að náin samstarfsþjóð sem við eigum allt undir eins og fleiri í öryggis- og varnarmálum, Bandaríkin, svari ekki símanum. Þá spyr ég hæstv. utanríkisráðherra á móti: Finnst henni nóg að gert? Er það ásættanleg staða í samskiptum þessara vinaþjóða? Samskiptin voru ekki í þessu horfi þegar ég var aðstoðarmaður í utanríkisráðuneytinu, það var bara ekki þannig. Það var svarað í símann og ekki bara svarað, það voru ferðir fram og til baka milli íslenskra og bandarískra ráðamanna. Það er óásættanlegt að því góða starfi hafi ekki verið haldið áfram (Forseti hringir.) og þar skerum við okkur algerlega úr meðal Norðurlandanna. Mér finnst þetta óásættanlegt. Finnst hæstv. utanríkisráðherra þetta ásættanlegt?