157. löggjafarþing — 58. fundur,  22. jan. 2026.

Staða alþjóðamála, munnleg skýrsla utanríkisráðherra.

[16:55]
Horfa

utanríkisráðherra (Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir) (V) (andsvar):

Ég ætla að mótmæla því hátt að ekki sé verið að sinna samskiptum vestur yfir haf. Það er alls ekki þannig. Við erum með mjög öflugt sendiráð sem við erum að styrkja enn frekar til þess einmitt að treysta böndin og ágætissamskipti hafa átt sér stað. Við erum ekkert sammála í öllu, ég er að hugsa um viðskiptin núna, en við eigum í mjög efnisríkum samtölum. Ferð ráðuneytisstjóra var mjög uppbyggileg og ég bind vonir við það að fá fund m.a. við viðskiptafulltrúa Bandaríkjanna á næstu vikum. En ég hef líka hitt og talað óformlega við Marco Rubio og Pete Hegseth, boðið þeim til Íslands, sagt þeim að koma til Íslands, annar þeirra var mjög spenntur og sagði að margir vinir sínir hefðu farið til Íslands og hrifist af landinu, eðlilega. Við höfum átt samskipti ekki bara um þetta, við höfum átt ýmis samskipti, m.a. um varnir og öryggi. Menn eru meðvitaðir um þá ábyrgð sem felst í því að vera hluti af Atlantshafsbandalaginu en líka okkar mótaðili þegar kemur að mikilvæga samningnum okkar um varnarmálin. Það er enginn bilbugur á þeim og það er enginn bilbugur á okkur.