157. löggjafarþing — 58. fundur,  22. jan. 2026.

Staða alþjóðamála, munnleg skýrsla utanríkisráðherra.

[16:57]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil byrja á að þakka hæstv. utanríkisráðherra fyrir ræðuna. Það er rétt að það hefur verið gert býsna margt á Íslandi á síðustu árum. Umræðan hefur hins vegar kannski ekki verið almenn í samfélaginu og fjölmiðlum og annað en það er búið að gera margt. Hér áðan var getið um öndvegissetur um fjölþáttaógnir. Ég held að það hafi komið inn í fjárlögin 2019 fyrir 2020 og netöryggissetrið í Talinn í sömu fjárlögum. Það er búið að efla mjög margt og gera. Ég hef verið upptekinn af því í allri umræðu um þessi mál að það er mikilvægara að við reynum að fræða samfélag okkar heldur en hræða og ég verð að segja að mér finnst stjórnarflokkarnir, ríkisstjórnin, fara dálítið hratt í það að tala um öryggishlutverk og varnir sem Evrópusambandið hefur eða mátt þess í dag. Það eru 32 þjóðríki í Atlantshafsbandalaginu. Níu þeirra sem eru utan Evrópusambandsins greiða um 80% af öllum fjárveitingum til NATO. Evrópusambandsríkin 23 af 32 sem eru hluti af Atlantshafsbandalaginu greiða um 20%. Nágrannar okkar í Atlantshafinu, Kanadamenn, Bretar og Norðmenn greiða væntanlega töluvert meira inn í Atlantshafsbandalagið heldur en Evrópusambandsríkin. Það er mikilvægt að fólk geri sér grein fyrir þessu. Þarf ekki að fræða fólk svolítið um þetta samhengi hlutanna, hvernig er staðið að málum? Svo vil ég kannski rétt í lokin nefna að Ísland og íslenska GIUK-hliðið og það sem er verið að gera hér í Norður-Atlantshafinu er gríðarlega mikilvægt sem fyrstu varnir Bandaríkjanna. Ísland, Grænland, Noregur og hin Norðurlöndin gegna stóru hlutverki í tengslum við þetta. (Forseti hringir.) Er ekki langeðlilegast að meginhlutverkið núna sé Kanada og Noregur t.d., að einbeita sér að ná í styrk þaðan (Forseti hringir.) til að aðstoða okkur við þetta verkefni hér í vörnum Íslands?

(Forseti (EÁs): Forseti minni hv. þingmenn á ræðutímann.)