157. löggjafarþing — 58. fundur,  22. jan. 2026.

Staða alþjóðamála, munnleg skýrsla utanríkisráðherra.

[16:59]
Horfa

utanríkisráðherra (Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir) (V) (andsvar):

Frú forseti. Ég tek undir það og ég hef notað þetta nokkuð oft einmitt, að það sé mikilvægt að fræða og upplýsa en ekki hræða. Það vantaði svolítið á umliðnum árum að þótt það hafi verið rætt mikið um varnarmál þá var þetta svolítið „hush hush“ í síðustu ríkisstjórn og við vitum alveg af hverju það var. Þrátt fyrir að margir góðir hlutir hafi verið gerðir þá vantaði samt umræðu um varnar- og öryggismál þannig að aukning og áherslur á þetta væru ekki að koma fólki á óvart. Ég er sammála hv. þingmanni um mikilvægi GIUK-hliðsins, um mikilvægi þess að treysta samböndin og það hef ég verið að tala um við Kanadamenn, Norðmenn, Breta og Dani. Það er líka mikil umræða núna varðandi það að fara í ákveðna samvinnu um Norður-Atlantshafið milli þessara ríkja og ég tel að við eigum að taka þátt í því. Mér finnst líka mikilvægt að draga fram að við verðum einnig að gera þetta með NATO, með Atlantshafsríkjunum og reyna að treysta og auka áhuga þeirra og metnað á norðurslóðum. Hann er að aukast. Á síðasta ári sendu m.a. í fyrsta sinn Spánverjar flugsveitir hingað til þess að sinna loftrýmisgæslu. Við erum að sjá aukinn áhuga annarra ríkja suður í Evrópu og líka Tyrkja á þessum slóðum og ég tel það mikilvægt einmitt að við getum gert þetta undir regnhlíf Atlantshafsbandalagsins, sem er okkur náttúrlega gríðarlega mikilvægt. Ég segi: Þetta er allt sem við erum að gera, tvíhliða yfirlýsingar, efla samstarf vestur og austur yfir en við hljótum samt þrátt fyrir allt að þora að horfast í augu við þá heimsmynd sem er að teiknast upp. Ég vil ekki að það verði bara þannig að stórveldin ráði og við megum bara láta okkur duga þá brauðmola eða afganga sem okkur eru réttir. (Forseti hringir.) Mér finnst það ekki fýsileg heimsmynd. Þess vegna skiptir máli (Forseti hringir.) að tengja sig við þau ríki sem eru líkt þenkjandi og við og deila svipuðum gildum.