Staða alþjóðamála, munnleg skýrsla utanríkisráðherra.
Frú forseti. Ég man að hæstv. ráðherra málaflokksins á sínum tíma, maður sem situr hér í salnum, Guðlaugur Þór Þórðarson, hélt opna fundi og reyndi að halda uppi umræðu en hún varð kannski ekki eins almenn í samfélaginu og maður hefði viljað. Eftir lok kalda stríðsins datt niður umræðan um þessa hluti. Það sem ég vil gera athugasemdir við í allri umræðunni og þessari miklu áherslu sem ríkisstjórnin leggur á þennan þátt og áhuga hjá stjórnarflokkunum á að ganga í Evrópusambandið, er að það veiti svo mikið öryggi og mikla öryggistilfinningu að Evrópusambandið komi að vörnum landsins með svo sterkum hætti. Ég fór hér áðan í gegnum þessar fjárveitingar sem eru innan NATO-ríkjanna og hvernig þetta er uppsett hjá NATO-ríkjum sem eru í Evrópusambandinu og þeim sem eru það ekki. (Forseti hringir.) Það væri kannski áhugavert að fá eitthvað fram frá hæstv. ráðherra um þessar fjárveitingar og hvað þetta er rosalega stórt verkefni, að ætla að ná styrk. (Forseti hringir.) Bandaríkjamenn eru væntanlega með 55–60% af fjárveitingu til NATO í dag. (Forseti hringir.) Ég sé ekki fyrir mér að þeir séu að hverfa (Forseti hringir.) úr öryggismálum í Norður-Atlantshafi á næstu árum.