157. löggjafarþing — 58. fundur,  22. jan. 2026.

Staða alþjóðamála, munnleg skýrsla utanríkisráðherra.

[17:03]
Horfa

utanríkisráðherra (Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir) (V) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég er sammála því, ég held að Bandaríkjamenn séu ekki að hverfa af þessu svæði og mega bara ekki gera það. Ég vona að við getum haldið áfram að vinna þetta á forsendum og grundvelli NATO og bera virðingu fyrir öllum þeim greinum sem eru í sáttmálanum. Mér finnst ekki endilega nægilega mikil virðing borin fyrir þeim greinum, hvort sem það er 2. gr. eða 4. gr., og við vitum alveg hvað 5. gr. felur í sér. Þetta tengist auðvitað allt og ég vona að við séum núna svolítið að berja í brestina og getum haldið áfram á þessum forsendum. Auðvitað eru bæði Danir, Grænlendingar og fleiri með ákveðna fyrirvara núna og hnút í maganum. Það er búið að vera að rugga með fullveldið og það er alvörumál í mínum huga. Þess vegna skiptir máli að við tengjumst þeim þjóðum sem tala skýrt með Grænlandi. Ég er fegin að geta sagt að Sjálfstæðisflokkurinn hefur verið ótvíræður í sínum yfirlýsingum og staðið með Grænlandi. (Forseti hringir.) Ég hef þó verið skömmuð af þingmönnum Miðflokksins fyrir að vera óvarkár í yfirlýsingum (Forseti hringir.) þar sem ég hef sagt að við stöndum með Grænlandi. Við stöndum með fullveldi þeirra og sjálfsákvörðunarrétti. Það er ekki að fara óvarlega (Forseti hringir.) og ef þessi umræða skilar sér í því að við getum bókað hér í þinginu að við stöndum öll á þessum forsendum með Grænlandi hefur þessi umræða skilað sér í einhverju.